Menning

Hlý fjallagola úr suðri í Kaldalónssalnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Í Hnúkaþey eru hörkublásarar sem hafa spilað saman af og til frá 2003.
Í Hnúkaþey eru hörkublásarar sem hafa spilað saman af og til frá 2003. Mynd/úr einkasafni
„Þetta er aðlaðandi efnisskrá sem við höfum verið að æfa og við vonumst til að höfða til heimamanna og ferðamanna, bæði íslenskra og erlendra.

Fólk þarf ekki að vera forfallnir unnendur klassískrar tónlistar, bara kunna að meta fagra tónlist,“ segir Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari og einn af spilurum í Hnúkaþey.

Sveitin er að undirbúa hádegistónleika á sunnudaginn í Kaldalónssal Hörpu klukkan 12.30. Miðasala fer fram á www.harpa.is

Íslenska orðið hnúkaþeyr stendur fyrir hlýja fjallagolu úr suðri. Blásaraoktettinn með því nafni var stofnaður 2003 og samanstendur af blásurum sem hafa verið virkir í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi, ýmist sem meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands eða sjálfstætt starfandi.

„Við höfum komið saman af og til en lítið verið um tónleika hjá okkur í tvö ár. Svo þetta er nokkurs konar endurkoma,“ segir Mjöll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×