Heyrnarlaus fær ekki námsgögn: „Fáránlegt að við þurfum að höfða mál“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. ágúst 2015 21:30 Íslenkt táknmál er móðurmál Andra Fannars Ágústssonar en námsefni er ekki til á máli hans. mynd/björg hafsteinsdóttir
Tíu ára heyrnarlaus drengur fær námsgögn sín ekki þýdd yfir á táknmál. Kröfu þess efnis var vísað frá héraðsdómi í lok maí og staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu dómsins í síðustu viku. Andri Fannar Ágústsson er nemandi við Holtaskóla í Reykjanesbæ en íslenskt táknmál er hans fyrsta mál. Í upphafi síðasta árs kom í ljós að það námsefni sem gert hafði verið ráð fyrir að hann myndi læra var ekki til á táknmáli. „Hann er að byrja í sjötta bekk núna á næstu dögum,“ segir Björg Hafsteinsdóttir, móðir Andra Fannars. „Það er okkar val að hafa hann í almennum skóla og þetta hefur gengið vel. Hann er með góðan kennara og túlk en ekki námsefni á tungumáli sem hann skilur.“ Árið 2011 tóku gildi lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensk táknmáls en þar segir í 3. gr. laganna að „íslenskt táknmál sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta barna þeirra. Skulu stjórnvöld hlúa að því og styðja.“ „Það er í raun fáránlegt að við þurfum að höfða mál til að fá námsefni fyrir son okkar á tungumálinu hans þegar það er bundið í lög,“ segir Björg.Ástráður Haraldsson, lögmaður Andra Fannars.vísir/ernirEkki dómstóla að ákveða hvað sé gefið út Holtaskóli hafði samband við Námsgagnastofnun en í svarbréfi stofnunarinnar kom meðal annars fram að ekki hafi verið fært að laga efni að þörfum einstakra nemenda með ólíkar fatlanir. Ekki hafi heldur komið til tals að þýða efni einstakra námsgreina yfir á táknmál. Í nóvember á síðasta ári fór lögmaður Andra fram á það við Námsgagnastofnun að stofnunin myndi útvega námsgögn fyrir skjólstæðing sinn líkt og lög kvæðu á um. Svar stofnunarinnar var á þann veg að henni bæri ekki skyldu til að koma til móts við óskir stefnanda um að þýða námsefni yfir á táknmál. Stofnunin tæki mið af fjárheimildum fjárlaga og það væri einfaldlega ekki svigrúm til að koma til móts við Andra. Er málið var tekið fyrir hjá héraðsdómi kröfðust stefndu, íslenska ríkið og Reykjanesbær, þess að málinu yrði vísað frá á þeim grundvelli að Andri Fannar hefði ekki lögvarða hagsmuni í málinu og að svar Námsgagnastofnunar teldist ekki stjórnvaldsákvörðun heldur eingöngu álit. Að auki fælist það í kröfu stefnanda um að tilteknar bækur yrðu þýddar yfir á táknmál að dómstóllinn myndi seilast inn á svið sem heyrir undir stjórnvöld. Á þetta féllst héraðsdómur og Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu á þeirri forsendu að málatilbúnaðurinn uppfyllti ekki kröfum IV. kafla laga um meðferð einkamála.Réttarfarslegt maus „Þetta er eitt af þessum málum þar sem erfitt er að finna réttarfarslegu leiðina til að málið teljist dómhæft,“ segir Ástráður Haraldsson lögmaður Andra Fannars. Málið sé fræðilega mjög fólkið og það sé talsvert maus að útbúa kröfugerðina á réttan hátt. Næstu skref í málinu felist í því. „Að því sögðu þá er ég fullkomlega ósammála niðurstöðu Hæstaréttar í þessu máli. Málinu er vísað frá á þeim grundvelli að það hafi verið einhvers konar tilætlun okkar að dómstólar tækju ákvörðun um hvaða efni yrði gefið út. Staðreyndin er sú að Námsgagnastofnun hefur ákveðið hvað skal gefið út, skólinn hans hefur ákveðið hvað skal kennt og við viljum aðeins að það sé aðgengilegt á móðurmáli Andra Fannars.“ „Samkvæmt íslenskum lögum, bæði jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, þá á námsefnið að vera aðgengilegt fyrir fólk sem hefur táknmál fyrir móðurmál,“ segir Ástráður. Móðir Andra Fannars segir vanþekkingar á málefnum heyrnarskerta gæta í kerfinu.mynd/björgMismununin það sárasta Móðir Andra segir mismununina sem felst í núverandi kerfi vera sára. Hún hafi til að mynda átt í samskiptum við Huld Magnúsdóttur, forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til að fá að vita hvernig fyrirkomulagið sé hjá þeim. „Ef þú ert blindur eða sjónskertur þá pantarðu námsefnið með góðum fyrirvara og það er tilbúið þegar þú hefur nám. Hins vegar ef þú ert heyrnarlaus þá færðu ekkert. Níu stöðugildi starfa við þetta hjá sjónskertum en enginn hjá heyrnarlausum,“ segir Björg. Hún segir hins vegar sárast að í öllu þessu ferli þá hafi hún og maðurinn hennar, Ágúst Þór Hauksson, aldrei fengið að segja sína meiningu. „Það virðist vera ákveðið þekkingarleysi á málefnum heyrnarlausra í kerfinu. Í einhverjum greinargerðum virðist gert ráð fyrir því að Andri kunni að lesa en það er ekki svo. Ef hann kynni að lesa þá gæti hann notað sama námsefni og önnur börn og þyrfti ekki á þessari þýðingu að halda. Við værum aldrei að gera þetta að ástæðulausu.“ Næstu skref í máli Andra ráðast á næstu dögum. „Þetta stapp hefur tekið okkur ár núna en ég útiloka ekki að það komi til óvænt fjármagn og málið leysist. Þetta er allt saman ákveðin keppni við tímann og við viljum að þetta leysist sem fyrst en það verður framtíðin að leiða í ljós,“ segir Björg. Holtaskóli verður settur mánudaginn eftir viku og hefur Andri Fannar þá nám í sjötta bekk. Námsefni fyrir hann er ekki tilbúið og ljóst að afar erfitt verður að haga málum þannig að það verði tilbúið er skólinn hefst.
Tengdar fréttir Ráðherrann vill ekki áfrýja í túlkamálinu Menntamálaráðherra mælir ekki með því að áfrýja máli þar sem ríkið var dæmt til að greiða fatlaðri stúlku miskabætur og útlagðan kostnað við túlkaþjónustu. 9. júlí 2015 07:00 Heyrnarlausir fagna dómi í máli Snædísar: „Tryggja þarf rétt okkar til að vera virkir þjóðfélagsþegnar“ Formaður Félags heyrnarlausra segir úrskurð héraðsdóms í máli Snædísar Ránar mikilvægan sigur í baráttu þeirra sem nota táknmál í daglegu lífi. 2. júlí 2015 13:37 Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Ráðherrann vill ekki áfrýja í túlkamálinu Menntamálaráðherra mælir ekki með því að áfrýja máli þar sem ríkið var dæmt til að greiða fatlaðri stúlku miskabætur og útlagðan kostnað við túlkaþjónustu. 9. júlí 2015 07:00
Heyrnarlausir fagna dómi í máli Snædísar: „Tryggja þarf rétt okkar til að vera virkir þjóðfélagsþegnar“ Formaður Félags heyrnarlausra segir úrskurð héraðsdóms í máli Snædísar Ránar mikilvægan sigur í baráttu þeirra sem nota táknmál í daglegu lífi. 2. júlí 2015 13:37