Fótbolti

Hannes: Ég get viðurkennt létti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ísland vann frábæran 2-1 sigur á Kósóvó í Albaníu í kvöld. Sigurinn var tæpur en strákarnir okkar þurftu að hafa mikið fyrir honum gegn seigu liði Kósóvó.

„Þetta var frábær sigur en erfiður. Við komum inn í þennan leik sem sigurstranglegri aðilinn en það er fleira sem kom til - við vorum í vandræðum vegna meiðsla og þeir að bæta við mannskapinn hjá sér,“ sagði Hannes eftir leikinn í kvöld.

„Við vissum því ekki alveg hvað við myndum fá frá þeim. Kósóvó er með hörkulið og þetta hefði getað farið á hvorn veginn sem er. Það er því gríðarlega sterkt að fara héðan með þrjú stig.“

Hannes Þór hrósaði varnarlínu íslenska liðsins sem stóð í ströngu allan leikinn í kvöld. „Hún var þétt og öflug. Það var kraftur í liði Kósóvó en þeir komust samt í mjög fá opin færi. Eitthvað hafa varnarmennirnir fyrir framan mig verið að gera rétt því pressan var mikil en þeir sluppu ekkert í gegn.“

Hann segir að það hafi í raun breytt litlu fyrir hann þó svo að Kósóvó hefði tekið inn þrjá nýja framherja í leikmannahópinn fyrir þennan leik.

„Það er vissulega óþægilegra en yfirleitt kíki ég rétt yfir nokkur myndbönd af aukaspyrnu og hornaspyrnum og svo tekst ég bara á við það sem kemur í leiknum. Þetta var engin undantekning á því.“

„En auðvitað er alltaf betra að þekkja andstæðinginn og það gerir það að verkum að þessi sigur er extra sætur og sterkur. Það var margt að varast í aðdraganda leiksins og þetta var stórhættulegur leikur.“

Valon Berisha átti stórhættulegt skot í stöðunni 0-0 sem strauk ofanverða slána á íslenska markinu.

„Ég var allan tímann með hann og hefði varið hann ef hann hefði verið á leiðinni inn. Við skulum því skrá þetta sem varið skot,“ sagði Hannes og brosti. Hann dró svo reyndar í land.

„Nei, þetta var gott skot hjá honum. Ég hugsa að ég hefði verið í basli ef hann hefði hitt á rammann þarna. Ég get viðurkennt að það var léttir að sjá skotið fara yfir.“


Tengdar fréttir

Kári: Nú er bara að vinna Króata

Kára Árnasyni var létt í leikslok eftir erfiðan, en mikilvægan sigur gegn Kósóvó, 2-1, í undankeppni HM í Rússlandi sem fer fram sumarið 2018.

Twitter yfir landsleiknum: "Þvílík mamma"

Íslenska karlalandsliðið vann afar góðan sigur á Kósóvó, en lokatölur urðu 2-1. Leikið var ytra í dag, en leikurinn var liður í undankeppni HM 2018.

Aron Einar: Þetta var karakterssigur

"Þetta voru heldur betur sæt stig. Þetta var vinnsla,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson kátur eftir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×