Innlent

Hæpið að stjórnvöld geti farið fram á lokun vefsíðna

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Eiríkur Jónsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands segir hæpið að stjórnvöld geti gefið fyrirtækinu ISNIC bindandi fyrirmæli um að loka óæskilegum vefsíðum. Skýra þurfi lagaumhverfið betur. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar segir að breyta þurfi lögum til að eyða réttaróvissu. 

Lokun vefsíðu tengdri samtökunum Ríki Islam var til umfjöllunar á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun. ISNIC, sem annast lénaskráningar á íslenskum lénum, tók ákvörðun um að loka léni með .is endingunni sem tengdist samtökunum Ríki Islam. Ákvörðunin var tekin á viðskiptalegum forsendum en skráningu lénsins var jafnframt ábótavant.

Nokkur umræða skapaðist í kjölfarið um það hvort hægt væri að synja samtökum eins og Ríki Islam um skráningu íslenskra léna.

Eiríkur Jónsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands var gestur á fundinum í morgun. Hann segir vafa leika á því hvort stjórnvöld geti gefið ISNIC bindandi fyrirmæli um lokun vefsíðna.

„Það er óljóst í reynd hvernig eigi að taka á slíkum málum. Það er frekar brýnt að menn hugsi hvernig rétt sé að gera það,“segir Eiríkur. 

Eins og lagaramminn er í dag, geta stjórnvöld gefið slík fyrirmæli? „Mér þykja reglurnar nokkuð óljósar um það þá hver eigi sök í þeim efnum. Það eru ákvæði um að ef brotið er gegn samkeppnishagsmunum þá er hægt í gegnum Neytendastofu að knýja fram breytingar á lénaskráningu. Eins geta höfundarréttarsjónarmið leitt til þess en þegar um er að ræða tilvik þar sem hugsanlegur hatursáróður er kominn á netið þá finnst mér ekki liggja í augum uppi hvernig eigi að meðhöndla það og hver fer af stað með slíkt mál.“

Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.365/ÞÞ
Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis og samgöngunefndar segir að löggjafinn verði að skoða hvort skýra þurfi lagaumhverfið. Hann segist reikna með að málið komi aftur inn  á borð nefndarinnar síðar í vetur.

„Við fengum þær upplýsingar frá ISNIC að það hefði tekið þessa ákvörðun út frá viðskiptalegum sjónarmiðum. Við þurfum að spyrja okkur ef fyrirtækið hefði ekki gert það, hvernig getur ríkið gripið inn í og á hvaða grunni og hvaða lagaforsendum yrði það gert,“ segir Höskuldur. 






Tengdar fréttir

Óttuðust að IS myndi sækja í .is

Jens Pétur Jensen frá ISNIC og Aðalheiður Ámundadóttir frá IMMI ræddu um íslenska heimasíðu Íslamska ríkisins í Bítinu í morgun.

ISNIC lokar vef ISIS

ISNIC hefur ákveðið að loka lénum sem notuð voru fyrir vefsíðu yfirlýstra hryðjuverkasamtaka en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Síðu IS lokað af Advania

Vefhýsirinn Advania hefur lokað fyrir vefsíðuna khilafah.is, fréttasíðu öfgasamtakanna Íslamskt ríki, sem skráð var á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×