„Ég játa brotið," sagði Gunnar Rúnar Sigurþórsson, tuttugu og þriggja ára maður, í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þar fór fram þingfesting á ákæru ríkissaksóknara, þar sem Gunnari Rúnari er gert að sök að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni að morgni sunnudagsins 15. ágúst 2010. Niðurstaða geðrannsóknar sem Gunnar Rúnar hefur gengist undir er sú að hann sé ekki sakhæfur, að sögn Sigríðar Elsu Kjartansdóttur, saksóknara í málinu.
Fjölmargir ættingjar og vinir voru mættir í dómsal þegar Gunnar Rúnar var leiddur þar inn eftir hádegið í gær. Ekki voru sæti fyrir alla í salnum, þannig að nokkrir urðu að standa meðan þinghald stóð yfir. Mörgum viðstaddra var greinilega mjög brugðið þegar saksóknari las ákæruna upp, en í henni er lýst þeim áverkum sem drógu Hannes til dauða. Þar segir að Gunnar Rúnar hafi banað Hannesi með því að stinga hann ítrekað með hnífi í brjóst, bak, háls, andlit, handleggi og hendur.
„Gengu hnífstungur meðal annars í hjarta, lunga og nýra," segir í ákærunni. Þá er þess aðallega krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar en til vara að honum verði gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

Fram kom að tveir geðlæknar myndu leggja yfirmat á geðrannsókn sem Gunnar Rúnar hefði gengist undir. Samkvæmt henni er hann ekki talinn sakhæfur, eins og áður sagði, en dómari úrskurðar endanlega um sakhæfi hans.
Verjandi Gunnars Rúnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, lagði fram kröfu um að þinghaldið yrði lokað til verndar sakborningi og fjölskyldu hans. Til vara að það yrði lokað þegar Gunnar Rúnar og geðlæknarnir gæfu skýrslu. Saksóknari tók ekki afstöðu til kröfunnar en vísaði ákvarðanatöku til Söndru Baldvinsdóttur héraðsdómara, sem tók sér umhugsunarfrest til 21. desember, þegar þinghaldi verður fram haldið.
Í málinu gera foreldrar Hannesar Þórs kröfu um að Gunnar Rúnar greiði þeim miskabætur upp á samtals fimm milljónir króna, auk skaðabóta vegna útfararkostnaðar að upphæð tæpar 1,3 milljónir. Gunnar Rúnar viðurkenndi í gær bótarétt foreldranna en mótmælti upphæð kröfunnar. Þá krefst unnusta Hannesar þess að Gunnar Rúnar greiði sér 2,5 milljónir króna í miskabætur. Þeirri kröfu hafnaði hann.
Gæsluvarðhald yfir honum var framlengt til 17. desember í gær.
jss@frettabladid.is