Menning

Góð og gild ástæða fyrir vinsældunum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Hallveig Rúnarsdóttir og Kári Þormar verða í stórum hlutverkum á tónleikunum.
Hallveig Rúnarsdóttir og Kári Þormar verða í stórum hlutverkum á tónleikunum. Fréttablaðið/Anton
Requiem/Sálumessa Ópus 48 eftir Fauré er óskaplega fallegt verk og oft flutt. Það er góð og gild ástæða fyrir vinsældum þess og það heyrir fólk þegar það leggur við hlustir,“ segir Kári Þormar dómorganisti.

 

Tilefnið er tónleikar Dómkórsins klukkan 20 annað kvöld í Neskirkju þar sem Sálumessan verður flutt í orgelútgáfunni.

Lenka Mátéová leikur á orgelið en Kári ætlar að stjórna herlegheitunum. „Við erum með tvo frábæra einsöngvara, Hallveigu Rúnarsdóttur sem flestir þekkja og Fjölni Ólafsson sem er vel ættaður, sonur Ólafs Kjartans, afinn er Diddi fiðla og langafinn Jón bassi, svo syngur hann vel í þokkabót!“

Það var eiginlega óvænt að Kári skyldi svara símanum á miðjum degi í gær. Hann hlær þegar haft er orð á því.

 

„Maður er týpískur organisti. Til að ná prófi í því fagi þarf maður að geta keyrt bíl, talað í síma, borðað pulsu með öllu og bundið bindishnút á lokamínútum fyrir athafnir!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×