Viðskipti innlent

Gagnrýni á ógagnsæi og óhóflega gjaldtöku ekki réttmæt

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Vísir/GVA
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að gagnrýni á ógagnsæi og óhóflega gjaldtöku á þjónustu bankans sé ekki að öllu leyti réttmæt því bankinn bjóði upp á þrjú hundruð vörur.

Eðlilegt sé að þeir viðskiptavinir sem stofni til kostnaðarins, greiði fyrir hann. Af bönkunum þremur voru þjónustugjöld stærstur hluti hagnaðar Arion banka en bankinn var með 13 milljarða í hreinar þjónustutekjur í fyrra.

Arion banki var með langmestu þjónustutekjurnar af bönkunum þremur í fyrra en hreinar þjónustutekjur námu 13,3 milljörðum króna af 28,6 milljarða hagnaði.

Allir bankarnir þrír, ekki bara Arion banki, hafa legið undir gagnrýni fyrir að vera með ógagnsæja verðskrá til neytenda þegar kemur að þjónustugjöldum og fyrir að rukka viðskiptavini fyrir nánast allt milli himins og jarðar. Sumu fólki svíður fyrir að borga á annað hundrað krónur fyrir einfalda millifærslu beiðni í gegnum síma, svo dæmi sé tekið.

Höskuldur Ólafsson bankastjóri Arion banka segir að bankinn bjóði upp á þrjú hundruð vörur. Eðlilega séu verð mismunandi.

Er hægt að einfalda þetta og gera gagnsærra fyrir neytendur?

„Við hlustum á alla gagnrýni og það er í sjálfu sér rétt að gjaldskrárnar mættu vera einfaldar og skilmerkilegar fram settar. Við erum að vinna í því núna að laga til í því hjá okkur. Við erum viðskiptabanki og eðli málsins samkvæmt erum við með mjög margar vörur. Við erum með um þrjú hundruð vörur. Ég veit ekki hvort hægt sé að koma gjaldskrá með þrjú hundruð vörum á framfæri með miklu einfaldari hætti. Við munum leitast við að einfaldlega koma þessu skilmerkilega fram,“ segir Höskuldur.

Höskuldur segir umræðuna snúast um upphæðina, hvað sé verið að innheimta fyrir þjónustuna. „Við erum að reyna að haga þessu þannig að þeir sem stofna til kostnaðarins borgi fyrir þjónustuna þannig að það sé ekki þannig að einhver sem sé ekki að nýta sér þjónustuna sé að borga fyrir einhvern sem er að nýta þjónustuna.“

Höskuldur er þarna að vísa til þess að sá sem nýtir sér ekki netbanka eða app, sem er miklu ódýrara, greiði fyrir þjónustu gegnum þjónustuver fremur en að aðrir viðskiptavinir bankans sem nýti sér tæknina taki á sig þennan kostnað. Lítil sanngirni sé í því.


Tengdar fréttir

80 milljarðar í samanlagðan hagnað

Samanlagður hagnaður Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankans nam 81 milljarði króna á síðasta ári. Hagnaður Landsbankans var mestur eða 29,7 milljarðar króna. Hagnaður Arion banka var 28,6 milljarðar og hagnaður Íslandsbanka 22,8.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×