Innherji

Hagnaður stóru sjóða­stýringar­fé­laganna minnkaði eftir erfitt ár á mörkuðum

Hörður Ægisson skrifar
Flestir eignamarkaðir á Íslandi áttu undir högg að sækja á síðasta ári, meðal annars af háu vaxtastigi, sem setti mark sitt á afkomu sjóðastýringarfélaga í rekstri bankanna.
Flestir eignamarkaðir á Íslandi áttu undir högg að sækja á síðasta ári, meðal annars af háu vaxtastigi, sem setti mark sitt á afkomu sjóðastýringarfélaga í rekstri bankanna.

Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um þrettán prósent á síðasta ári sem einkenndist af krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum fyrir fjárfesta. Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, dróst mest saman, eða um liðlega helming á milli ára.


Tengdar fréttir

Hagnaður Stefnis minnkaði um ellefu prósent eftir sveiflu­kennt ár á mörkuðum

Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, skilaði um 1.095 milljóna króna hagnaði í fyrra og dróst hann saman um meira en ellefu prósent en eignir í stýringu minnkuðu jafnframt lítillega á ári sem einkenndist af sveiflum á verðbréfamörkuðum. Innlausnir hjá fjárfestum í stærsta innlenda hlutabréfasjóði landsins voru samtals tæplega 2,5 milljarðar á síðasta ári.

Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum

Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×