Innherji

Gengi bréfa Arion rýkur upp eftir „frá­bæra“ skulda­bréfa­út­gáfu í evrum

Hörður Ægisson skrifar
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka. Með nýju skuldabréfaútgáfunni greiðir bankinn upp eldri útgáfu sem var á óhagstæðari kjörum.
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka. Með nýju skuldabréfaútgáfunni greiðir bankinn upp eldri útgáfu sem var á óhagstæðari kjörum. Aðsend/BIG

Hlutabréfaverð Arion hækkaði skarpt eftir að bankinn kláraði 300 milljóna evra almennt skuldabréfaútboð á hagstæðustu kjörum sem íslenskum bönkum hefur boðist í yfir tvö ár en umframeftirspurnin reyndist meiri en sést hefur í útgáfum evrópskra fjármálafyrirtækja í nokkurn tíma. Alþjóðlegi fjárfestingabankinn JP Morgan, einn umsjónaraðila útboðsins, segir niðurstöðuna endurspegla þann aukna áhuga sem er meðal fjárfesta á skuldabréfum íslenskra banka.


Tengdar fréttir

Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skulda­bréfa­fjár­­festa

Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×