Magnaður De Bru­yne sá um Crys­tal Palace

Smári Jökull Jónsson skrifar
Kevin De Bruyne fagnar öðru marki sínu og fjórða marki Manchester City í dag.
Kevin De Bruyne fagnar öðru marki sínu og fjórða marki Manchester City í dag. Vísir/Getty

Kevin De Bruyne var maðurinn á bakvið 4-2 sigur Manchester City á Crystal Palace í hádegisleik ensku úrvalsdeildinnar. City jafnar Liverpool að stigum á toppnum með sigri.

Manchester City var í 3. sæti ensku deildarinnar fyrir leikinn en Crystal Palace í neðri hlutanum. Það kom því flestum í opna skjöldu þegar Jean-Philippe Mateta kom liði Palace í 1-0 eftir mistök John Stones.

Lið City var nokkuð ólíkt sjálfu sér í fyrri hálfleiknum og lykilmenn eins og Rodri langt frá sínu besta. Liðið býr þó yfir einstaklingsgæðum í hæsta klassa og Kevin De Bruyne er gott dæmi þar um. Hann jafnaði metin í 1-1 á 13. mínútu með stórkostlegu marki þegar hann þrumaði boltanum í samskeytin.

Staðan í hálfleik var 1-1 en Palace fékk tækifæri til að ná forystunni á ný undir lok fyrri hálfleiks þegar Jordan Ayew skaut í þverslá og aftur skapaði Palace hættu eftir mistök leikmanna City.

Í síðari hálfleiknum var hins vegar aðeins eitt lið á vellinum. Rico Lewis kom City í 2-1 strax eftir rúmlega mínútu leik þegar hann skoraði með góðu skoti úr teignum. Erling Haaland skoraði síðan eftir frábæran undirbúning Jack Grealish og Kevin De Bruyne og á 70. mínútu kórónaði De Bruyne frábæran leik sinn með öðru glæsilegu marki.

Seinna mark De Bruyne var hans hundraðasta í búningi Manchester City.

Osonne Edouard minnkaði muninn í 4-2 skömmu fyrir leikslok en leikmenn City voru með leikinn í hendi sér og sigur liðsins aldrei í hættu.

Eftir sigurinn er Manchester City með jafnmörg stig og Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en hefur leikið einum leik meira. Arsenal getur náð toppsætinu í dag en liðið leikur við Brighton síðar í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira