Sport

Syrgir fimm­tán mánaða son sinn

Sindri Sverrisson skrifar
Francis Ngannou er þekktur bæði sem hnefaleikakappi og sem fyrrverandi UFC-bardagameistari.
Francis Ngannou er þekktur bæði sem hnefaleikakappi og sem fyrrverandi UFC-bardagameistari. Getty/Richard Pelham

Þungavigtarboxarinn og fyrrverandi UFC-meistarinn Francis Ngannou syrgir nú fimmtán mánaða son sinn, Kobe, sem lést.

Ngannou greindi frá þessu á Twitter og skrifaði: „Of snemmt til að kveðja en samt er hann farinn. Litli strákurinn minn, vinur minn og félagi, Kobe, var fullur af lífi og gleði. Núna liggur hann líflaus. Ég öskraði nafn hans aftur og aftur en hann svarar ekki.“

„Ég var besta útgáfan af sjálfum mér þegar ég var með honum og núna hef ég enga hugmynd um hver ég er. Lífið er svo ósanngjarnt að valda okkur svona mesta mögulega sársauka.“

Umboðsmaður þessa 37 ára Kamerúna skrifaði á samfélagsmiðla að hann myndi ásamt „milljónum annarra“ biðja fyrir Ngannou.

Conor McGregor og fleiri MMA-bardagakappar hafa einnig vottað Ngannou samúð sína opinberlega.

„Mér þykir miður að heyra af missi þínum Francis. Þú og fjölskylda þín verðið í bænum mínum,“ skrifaði McGregor á Twitter.

Ngannou keppti síðast 8. mars þegar hann mætti Anthony Joshua í hnefaleikabardaga í Sádi-Arabíu, sem Joshua vann af öryggi. Eftir tapið kvaðst Ngannou þó ætla að halda áfram í hnefaleikum.

Ngannou varð UFC-bardagameistari í þungavigt þegar hann vann Stipe Miocic í annarri tilraun í mars 2021, og hann varði titilinn með sigri á Ciryl Gane í janúar ári síðar. Hann yfirgaf UFC eftir að samningur hans við sambandið rann út í desember 2022 og sneri sér svo að hnefaleikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×