Viðskipti innlent

For­sprakki verk­efnisins „Stækkaðu fram­tíðina“ heim­sótti Landa­kots­skóla

Atli Ísleifsson skrifar
Úr Landakotsskóla í gær. Breski sendiherrann Bryony Mathew var í hópi þeirra sem heimsóttu börnin.
Úr Landakotsskóla í gær. Breski sendiherrann Bryony Mathew var í hópi þeirra sem heimsóttu börnin. Breska sendiráðið

Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina”, Bretinn Nick Chambers, var í hópi fólks sem heimsótti 5. bekk Landakotsskóla í Reykjavík í gær þar sem spjallað var um starfstækifæri framtíðarinnar, fjölbreytileika og framtíðardrauma nemenda. Auk Chambers heimsótti breski sendiherrann Bryony Mathew og Sævar Helgi Bragason nemendurna.

Tilefni heimsóknarinnar var verkefnið „Stækkaðu framtíðina“ sem ætlað er að tengja fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins til að segja nemendum frá starfi sínu og menntun, en ráðherrarnir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, kynntu verkefnið í síðasta mánuði. Verkefnið verður í umsjá Nýsköpunar- og menntasamfélags (NýMennt) á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og er aðalskipuleggjandi þess Ragna Skinner, verkefnastjóri hjá háskólanum.

Í heimsókninni í Landakotsskóla gaf Sævar Helgi, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, krökkunum innsýn í starf sitt og hvað leiddi hann þangað.

Nick Chambers, Bryony Mathew og Sævar Helgi Bragason í Landakotsskóla.Breska sendiráðið

Nick Chambers er forsprakki upprunalegu útgáfu verkefnisins í Bretlandi sem nefnist Inspiring the Future og var sett á laggirnar í Bretlandi árið 2012. Verkefnið hefur einnig verið sett upp í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Sviss.

Nick kom til landsins á vegum breska sendiráðsins til að ræða meðal annars við ýmsa tengiliði úr skólakerfinu og stjórnmálum.

Nú þegar hafa yfir sex hundruð sjálfboðaliðar skráð sig til leiks en í heimsókn sinni hefur Nick lagt áherslu á að fá eins fjölbreyttan hóp sjálfboðaliða og mögulegt er, og hvetur fólk í öllum starfsgreinum og hlutverkum að skrá sig.

Breski sendiherrann Dr Bryony Mathew hefur sjálf skráð sig sem sjálfboðaliða í verkefnið „Stækkaðu framtíðina“ en hún hefur einnig verið sjálfboðaliði hjá „Inspiring the Future“ í nokkurn tíma og talað við fjölda nemenda í Bretlandi í gegnum fjarfundarbúnað. 

Breska sendiráðið

„Á Íslandi fer Bryony í grunnskóla víða um Ísland ásamt Sunnu Marteinsdóttur og Berglindi Jónsdóttur sem einnig starfa í sendiráðinu, en nú hafa þær hitt yfir 600 börn á landinu þar sem þær kynna bókina „Tæknitröll og íseldfjöll“ sem Bryony skrifaði fyrir íslensk börn um spennandi störf framtíðarinnar,“ segir í tilkynningu. 

Breska sendiráðið

Tengdar fréttir

Vilja fá vinnandi fólk til að segja börnum frá vinnumarkaði

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Í tilkynningu um verkefnið segir að markmið þess sé að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segi nemendum frá starfi sínu og menntun.

Bein út­sending: Stækkaðu fram­tíðina

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, munu á blaðamannafundi kynna nýtt verkefni sem verið er að setja af stað í menntakerfinu og ber heitið Stækkaðu framtíðina.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×