Viðskipti innlent

Í skýjunum með 111 milljarða króna út­boðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra. Vísir/vilhelm

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

Innherji á Vísi greindi fyrst frá sölunni vel heppnuðu og sögulegu í gær og eftir hádegið í dag.

Fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins að fjárfestar hafi sýnt útgáfunni mikinn áhuga og eftirspurn numið um sjö milljörðum evra eða rúmlega nífaldri fjárhæð útgáfunnar. Fagfjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum, bönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Norður-Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum JP Morgan, BNP Paribas, DZ bank og Nomura.

„Það er einkar ánægjulegt að sjá það mikla traust sem fyrstu útgáfa grænna skuldabréfa fær frá fjölbreyttum hópi alþjóðlegra fjárfesta. Þetta er til marks um trúverðugleika stefnu okkar í ríkisfjármálum og umhverfismálum, sem undirstrikar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum tekist á hendur. Þessi mikli áhugi er ekki síður til marks um það traust sem fjárfestar bera til Íslands og ímynd landsins sem fyrirmyndar á sviði umhverfismála,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.

Fjárfestahópurinn taldi um 280 aðila sem er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í einstöku útboði á erlendum skuldabréfum ríkissjóðs. Níföld heildareftirspurn var að sama skapi án fordæmis.

„Útgáfan nú er í samræmi við þá stefnu sem við höfum sett fram í lánamálum og er hluti af aðgerðaráætlun í loftslagsmálum. Andvirði útgáfunnar verður nýtt til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna umhverfismála á næstu árum. Fjármögnunin styrkir getu okkar til að mæta enn frekar þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Rífleg eftirspurn og kjör ríkissjóðs bera einnig með sér traust á stjórn efnahags- og ríkisfjármála,“ segir Þórdís Kolbrún.


Tengdar fréttir

Ríkið klárar sölu á grænu evru­bréfi til tíu ára upp á um 110 milljarða

Íslenska ríkið er að klára útgáfu á sínu fyrsta græna skuldabréfi í erlendri mynt til tíu ára upp á 750 milljónir evra, jafnvirði um 110 milljarða íslenskra króna. Margföld umframeftirspurn var á meðal erlendra skuldabréfafjárfesta í útboðinu en skuldabréfaútgáfan er sú fyrsta hjá ríkissjóði á alþjóðlegum mörkuðum frá því snemma árs 2021.

Ríkið að ráðast í fyrstu grænu út­gáfuna með evru­bréfi til tíu ára

Íslenska ríkið vinnur nú að því að ljúka við sölu á sjálfbærum skuldabréfum til alþjóðlegra fjárfesta en meira en þrjú ár eru liðin frá síðustu útgáfu ríkissjóðs á erlendum mörkuðum. Fulltrúar Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins funda nú með fjárfestum, ásamt erlendum ráðgjöfum stjórnvalda, en um verður að ræða fyrstu grænu útgáfuna hjá ríkissjóði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×