Viðskipti innlent

Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur sam­starfi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kristján Ólafur var rekstrarstjóri nýrrar mathallar sem opna á, á Glerártorgi á Akureyri. Eik fasteignafélag hefur nú slitið samstarfi við Kristján í ljósi frétta af skattalagabrotum hans.
Kristján Ólafur var rekstrarstjóri nýrrar mathallar sem opna á, á Glerártorgi á Akureyri. Eik fasteignafélag hefur nú slitið samstarfi við Kristján í ljósi frétta af skattalagabrotum hans. Vísir

Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst.

„Ég er tekinn við þessu verkefni tímabundið. Ég hef verið inni í þessu verkefni frá upphafi í sjálfu sér þannig að þetta er ekki nýtt fyrir mig,“ segir Sturla í samtali við fréttastofu. Ákvörðun um að slíta samstarfi við Kristján Ólaf hafi verið tekin í samtali og samráði við hann sjálfan. RÚV greindi frá málinu fyrr í kvöld.

„Já, við kölluðum eftir þessum fundi og hann leiddi okkur í þessa átt. Það var engin reiði eða neitt svoleiðis. Hér er um einhverja stefnubreytingu að ræða, þannig lagað. Þetta hefur engin áhrif á útlit eða uppsetningu mathallarinnar.“

Hann segir þessa ákvörðun snúa að skattalagabrotum Kristjáns Ólafs, sem greint var frá í fréttum í lok síðasta mánaðar. Kristján Ólafur var dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir skattsvik. Var honum gert að greiða 87,4 milljónir í sekt til ríkissjóðs innan 360 daga.

Brotin framdi Kristján sem stjórnandi og prófkúruhafi MK Capital, sem kom meðal annars að rekstri Wok On.

Í kjölfar dómsins kom í ljós að Kristján Ólafur var ekki lengur eigandi Wok On. Hann hafði selt fyrirtækið til Davíðs Viðarssonar, eiganda Vy-þrifa og Pho Vietnam. Davíð hafði þá komist í fréttirnar vegna ólöglegs matvælalagers Vy-þrifa í Sóltúni. Davíð var svo í síðustu viku handtekinn ásamt átta öðrum. Hann og fimm til viðbótar var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um mansal á veitingastöðum hans, hótelum og gistihúsum, og skipulagða glæpastarfsemi. 

„Tengsl hans við Davíð Viðarsson eru annað mál, sem ég veit svo sem ekkert um en þetta snýr að skattalagabrotum hans og þessu moldviðri sem hefur þyrlast upp í kringum þetta. Maður svo sem veit ekkert hvernig það er en við viljum ekki láta bendla okkur við svona,“ segir Sturla. 

Þannig að ykkur var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns áður en fjallað var um þetta í fréttum? 

„Nei, það koma í ljós stórfelld skattalagabrot og okkur var ekki kunnugt um það. Það kom hvergi fram í okkar samskiptum að hann væri væntanlega að fá dóm í þessum málum. Það hefði verið eðlilegast hefði hann skýrt frá því í upphafi en svo var ekki.“


Tengdar fréttir

„Þetta er alveg skelfi­leg með­ferð á starfs­fólki“

Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×