Menning

Troð­fullt í Marshall-húsinu á opnun list­rænna systra

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið líf og fjör í Marshall-húsinu á laugardaginn þegar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur opnuðu sýningu í Þulu. 
Það var mikið líf og fjör í Marshall-húsinu á laugardaginn þegar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur opnuðu sýningu í Þulu.  SAMSETT

Fullt var út úr dyrum í Þulu galleríi í Marshall-húsinu síðastliðinn laugardag við opnun á sýningu systranna og listakvennanna Lilju og Ingibjargar Birgisdætra.

Sýningin heitir Hlutskipti og eru listaverkin í blönduðum miðlum, videói, skúlptúr og handmáluðum ljósmyndum. Systurnar eru báðar miklir reynsluboltar í heimi listarinnar og hafa sýnt verk sín víða, bæði erlendis og hérlendis.

Ingibjörg og Lilja Birgisdætur, listamenn sýningarinnar.Sunna Ben

„Lilja hefur unnið í mörgum miðlum og fengist við myndverk, videólist, hljóðgjörninga og ljósmyndun. Hún var höfundur opnunarverks Listahátíðar í Reykjavík 2013, The Vessel Orchestra, þar sem hún vann með kapteinum Reykjavíkurhafnar að því að búa til hljóðgjörning með skipaflautum 15 skipa. Lilja er partur af listakollektív-inu Fischersund sem vinnur á alþjóðlegum vettvangi og undirbýr nú einkasýningu í Norræna safninu í Seattle á þessu ári.

Ingibjörg hefur unnið náið með tónlistarsenunni á Íslandi og gert plötuumslög og tónlistarmyndbönd fyrir tónlistarfólk eins og Sigurrós, Jónsa, Múm, Sin Fang, Seabear, Sólay og Úlfur Úlfur. Ingibjörg er einn stofnmeðlimur og eigandi Fischersunds ilmgerðar og listasamsteypu sem meðal annarra verkefna er með staðfesta sýningu í Nordic Museum í Seattle, haust 2024,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu.

Hér má sjá sýningartextann ásamt vel völdum myndum frá opnuninni:

„Allt okkar líf seljum við tíma okkar og orku til að geta sankað að okkur hlutum.

Og vissulega safnast þeir upp, þar til þeir eru faldir inní skáp eða geymslu, gleymast og glata tilgangi.

Heimili okkar blása út, belgjast út af hlutum sem fylgja okkur, eða hafa kannski alltaf verið þarna, stundum er erfitt að muna hvaðan þetta kom allt saman. Á endanum kemur óhjákvæmilega að því að við rúmum ekki lengur þetta fargan sem fylgir okkur.

Þá er að sjálfsögðu kominn tími til að stækka við sig, vinna meira, þéna meira, þenjast út, til þess eins að ferja lokaða kassa úr einni myrkvaðri geymslu í aðra rúmbetri.

Og þegar dagur er að ævikvöldi kominn fá börnin okkar það hlutskipti að fara í gegn um skápa, skúffur og hirslur. Velja hvaða arf þau vilja halda áfram að dröslast með milli sinna heima.“

Ármann Reynisson lætur sig sjaldan vanta á menningarviðburði. Sunna Ben
Barði Jónsson, Jakob Frímann og Sigþrúður Ármann ásamt vinkonu voru í góðum gír. Sunna Ben
Daníel Ágúst skoðar verk ásamt Lilju Birgisdóttur listakonunni. Sunna Ben
Daría Sól og Örn Tönsberg. Sunna Ben
Nýbökuðu foreldrarnir Stefán Pálsson og Auður Ómarsdóttir listakona mættu með dóttur sína. Sunna Ben
Elísabet Alma eigandi Listval var í góðum gír í glæsilegri kápu. Sunna Ben
Guðlaugur Leósson og Maria-Carmela Raso til hægri. Sunna Ben
Videoverkum var varpað upp á vegg. Sunna Ben
Þessi mætti með cameruna!Sunna Ben
Gestir leyfðu sér að finna fyrir innblæstri frá listinni. Sunna Ben
Myndirnar eru gerðar með blandaðri tækni. Sunna Ben
Það var fullt út úr dyrum allan tímann á meðan að á opnuninni stóð. Sunna Ben
Ármann Reynisson og Högni Egilsson skemmtu sér vel. Sunna Ben
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson í forgrunni ásamt Hirti Matthíasi, Sigrúnu Lund og öðrum góðum gestum.Sunna Ben
Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.Sunna Ben
Hjúin Pálmi Sigurhjartarsson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir. Sunna Ben
Listamaðurinn Sigga Björg Sigurðardóttir. Sunna Ben
Stefán Pálsson og Snorri Ásmundsson. Sunna Ben
Sigrún Helga Lund og Hjörtur Matthías Skúlason. Sunna Ben
Sigurlína Helga Sindradóttir og Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur. Sunna Ben
Lilja Birgisdóttir brosti sínu breiðasta. Sunna Ben
Margt var um manninn og listunnendur sameinuðust í Þulu. Sunna Ben
Rakel McMahon og Elísabet Alma.Sunna Ben





Fleiri fréttir

Sjá meira


×