Neytendur

Lifandi vísindi skýri betur hvernig skuli segja upp á­skriftinni

Atli Ísleifsson skrifar
Tímaritið Lifandi vísindi kemur úr fjórtán til fimmtán sinnum á ári.
Tímaritið Lifandi vísindi kemur úr fjórtán til fimmtán sinnum á ári. Vísir/Vilhelm

Rekstraraðila tímaritsins Lifandi vísinda hefur verið gert að bæta upplýsingagjöf til neytenda varðandi það hvernig skuli segja upp áskrift að tímaritinu. Verði ekki gerð bragarbót á innan tveggja vikna skal rekstraraðilinn, Elísa Guðrún ehf., sæta dagsektum.

Þetta kemur fram í nýjum úrskurði Neytendastofu. Þar kemur fram að stofnuninni hafi borist ábending frá neytanda vegna skilmála Lifandi vísinda um uppsögn. Stofnunin hafi þá óskað eftir skýringum Lifandi vísinda um samskipti og upplýsingar við sölu áskriftar.

„Eftir svör Lifandi vísinda taldi Neytendastofa upplýsingagjöf félagsins ekki vera í samræmi við lagakröfur. Ekki væru veittar fullnægjandi upplýsingar við söluna, staðfesting á samningi ekki send til neytanda og ekki leiðbeint um rétt til að falla frá samningi. Þá taldi gerði stofnunin ennfremur athugasemdir við skilmála áskriftarinnar þar sem ekki var fjallað um rétt neytenda til að segja upp samningi vegna verðbreytinga á áskriftinni,“ segir á vef Neytendastofu.

Símasala í tuttugu ár

Í svörum Elísu Guðrúnar kom fram að félagið hafi verið með símasölu nánast óslitið í tuttugu ár og ávallt reynt að fara eftir reglum. Þar væri neytendum boðin tilboðsáskrift og mikilvægt væri að sölumaður upplýsi viðkomandi í símtalinu um að með því að samþykkja tilboðsáskrift sé komin á áskrift. 

„Þá sé upplýst um að tilkynna þurfi símleiðis eða með tölvupósti ef óskað sé eftir því að hætta áskrift og það sé ítrekað í lok símtalsins ef viðkomandi hafi samþykkt að gangast að áskriftartilboðinu. Þá kom fram að upplýsingablað með öllum upplýsingum um áskriftina sé sent með fyrsta blaðinu auk þess sem skilmálar séu aðgengilegir neðst á vefsíðunni,“ segir í úrskurðinum.

Ekki í samræmi við lög

Það hafi hins vegar verið niðurstaða Neytendastofu að upplýsingagjöfin hafi ekki verið í samræmi við þær kröfur sem gildandi lög gera til upplýsingagjafar fyrir og eftir að samningur kemst á.

Neytendastofa telur því að upplýsingagjöf og viðskiptahættir Lifandi vísinda hafi því ekki verið fullnægjandi og því brotið gegn lögum. Hefur félaginu verið gert að bæta upplýsingagjöfina innan tveggja vikna frá birtingu úrskurðar, sem var 7. desember síðastliðinn, ellegar greiða dagsektir að upphæð 20 þúsund krónum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×