Neytendur

At­hafna­leysi Katrínar geti skaðað hags­muni lands­manna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sterklega orðuð við framboð til forseta Íslands. Fjölmiðlafólk hefur ekki náð tali af henni eftir síðustu tvo ríkisstjórnarfundi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sterklega orðuð við framboð til forseta Íslands. Fjölmiðlafólk hefur ekki náð tali af henni eftir síðustu tvo ríkisstjórnarfundi. Vísir/Vilhelm

VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda segja Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra enn í lykilstöðu til að bjarga hag neytenda, launþega og verslunar í landinu. Hún geti beitt sér fyrir því að nýsamþykkt búvörulög verði felld úr gildi.

Lögin sem samþykkt hafi verið í flýti eftir miklar breytingar í meðför atvinnuveganefndar veiti stjórnendum ýmissa stórfyrirtækja heimild til að viðhafa ýmsa háttsemi sem í öðrum atvinnugreinum sé almennt ólögmæt og refsiverð. Meðal annars séu felld niður ákvæði í upphaflegu frumvarpi um að Samkeppniseftirlitið geti mælt fyrir um að einstakir samningar eða ákvarðanir framleiðendafélaga séu óheimilar.

„Kjötafurðastöðvum verður heimilt að sameinast án takmarkana, sem var ekki lagt til í upphaflegu frumvarpi. Samkeppniseftirlitið hefur bent á að engin dæmi séu um undanþágu af þessu tagi í nágrannalöndunum,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Katrín hefur undanfarnar vikur verið starfandi matvælaráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur sem boðar þó endurkomu í matvælaráðuneytið á morgun. Í erindi sínu til Katrínar reka formenn fyrrnefndra hagsmunasamtaka málið.

Samtökin þrjú benda á að Katrín hafi eftir samþykkt frumvarpsins svarað fjölmiðlum á þann veg að skoða þurfi hvort nýju lögin brjóti í bága við EES-samninginn.

„Samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna frá 24. febrúar 2023 skal í greinargerð með frumvarpi fjalla um samræmi þess við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar enda gefi frumvarpið tilefni til slíks mats. Ekki er gert ráð fyrir að ráðuneytin framkvæmi slíkt mat eftir á, þegar frumvörp eru orðin að lögum. Að mati samtakanna hefði verið fyllsta ástæða til þess að matvælaráðuneytið framkvæmdi nýtt mat á samræmi frumvarpsins við EES-samninginn eftir breytingar við 2. umræðu, áður en það var keyrt í gegnum Alþingi og varð að lögum,“ segja samtökin.

Þá gera þau athugasemdir við að málið hafi í raun ekki fengið þrjár umræður á Alþingi eins og kveðið er á um í stjórnarskrá. Málin hafi verið gjörbreytt við 2. umræðu.

„Það þingmál sem var samþykkt var allt annað en það sem umsagnaraðilar höfðu tekið afstöðu til í samráðsferli og í umsögnum til Alþingis og allt annað en það sem þingmenn ræddu við 1. umræðu. Ekki verður því séð að lögin hafi verið sett með stjórnskipulega réttum hætti.“

Fyrir vikið beri Katrín augljós skylda til að aðhafast tafarlaust að eigin frumkvæði til að tryggja þrennt:

  1. Að lagasetningin sé í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
  2. Að mat á áhrifum lagasetningarinnar sé í samræmi við reglur ríkisstjórnarinnar sjálfrar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna.
  3. Að meðferð Alþingis á málinu sé í samræmi við stjórnarskrána.

„Beinast liggur við að ráðherra beiti sér fyrir því að lög nr. 1322/2024 verði felld úr gildi. Athafnaleysi ráðherra í þessu máli er líklegt til að skaða hagsmuni neytenda, launþega og verslunar í landinu,“ segja samtökin og óska svara hið fyrsta um það til hvaða ráðstafana ráðherra hyggst grípa.


Tengdar fréttir

Að vera eða vera ekki í samkeppni við sjálfa sig

Ein réttlæting ríkisstjórnarmeirihlutans á Alþingi fyrir því að keyra í gegn breytingar á búvörulögunum, sem veita kjötafurðastöðvum víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum, er að tollfrjáls innflutningur á kjöti hafi aukizt umtalsvert.

Telur morgunljóst að nýju búvörulögin séu ólögleg

Stjórnsýslufræðingur segir að nýsamþykkt búvörulög hafi verið ólöglega sett því breytingarfrumvarpið hafi breyst of mikið við aðra umræðu. Hann telur að málið yrði dæmt ógilt ef það færi fyrir dómstóla.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×