Erlent

Egypski auð­kýfingurinn Al Fayed látinn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mohammed al-Fayed.
Mohammed al-Fayed. visir

Egypski auðkýfingurinn Mohamed Al Fayed, sem var meðal annars eigandi Harrods verslunarinnar og enska knattspyrnuliðslins Fulham FC, er látinn 94 ára að aldri. Al Fayed lætur lífið rétt rúmlega 26 árum eftir að sonur hans Dodi Fayed og Díana prinsessa fórust í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997. Fayed hélt því fram að dauði þeirra hafi verið skipulagður af bresku leyniþjónustunni.

Fayed fæddist í Alexandríu árið 1929 og stofnaði ungur flutningafyrirtæki áður en hann tók að sér ráðgjöf fyrir soldán Brúnei. Á áttunda áratugnum flutti hann til Bretlands þar sem hann náði eftirtektaverðum árangri í viðskiptalífi Lundúna. 

Árið 1985 eignaðist hann deildaverslunina Harrods sem er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópuálfu. Eignarhaldinu hélt hann til ársins 2010 þegar eignarhaldsfélag á vegum katarska ríkisins keypti Harrods fyrir 1,5 milljarða punda eða sem svarar til rúmlega 280 milljarða króna. Þá eignaðist hann ásamt bróður sínum Ritz hótelið árið 1979.

Árið 1997 keypti Fayed enska knattspyrnuliðið Fulham FC fyrir 6,25 milljónir sterlingspunda og bauð poppgoðsögninni Michael Jackson á leik á heimavelli liðsins Craven Cottage tveimur árum síðar. Heimsóknin vakti mikla athygli og í kjölfar andláts Jackson árið 2010 lét Fayed reisa styttu af goðsögninni fyrir utan heimavöll liðsins. Styttan vakti ekki beint lukku meðal stuðningsmanna og var tekin niður þegar milljarðaræringurinn Shahid Khan keypti félagið af Fayed árið 2013. 

Fayed hefur lengi verið áberandi í viðskiptalífi Bretlands en ævi hans var ekki laus við hneykslismál. Árið 1994 komst upp um mútugreiðslur Fayeds til breskra þingmanna sem höfðu þegið mútur gegn því að spyrja ákveðinna spurninga á breska þinginu. Leiddi hneykslismálið til afsagnar tveggja þingmanna. 

Eins og áður segir var Fayed faðir Dodi Fayed sem átti í ástarsambandi við Díönu prinsessu í nokkra mánuði áður en þau fórust bæði í bílslysinu fræga í París árið 1997. Fayed hélt því staðfastlega fram í kjölfar slyssins að það hafi átt sér stað með atbeina bresku leyniþjónustunnar. Því hefur verið hafnað af frönskum lögregluyfirvöldum. Hann dró sig úr sviðsljósinu síðustu ár ævi sinnar.

„Hann naut sín í ellinni innan um ástvini sína. Fjölskyldan óskar þess að friðhelgi einkalífs þeirra sé virt,“ segir í tilkynningu fjölskyldunnar.


Tengdar fréttir

Aldar­fjórðungur frá dauða Díönu

Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því að Díana prinsessa lést í bílslysi í frönsku höfuðborginni París, þá 36 ára gömul. Bresku prinsarnir Vilhjálmur og Harry munu verja deginum sitt í hvoru lagi, en þeir hafa vanalega komið saman á þessum degi til að minnast móður sinnar.

Harrods rauf milljarðs punda múrinn í fyrra

Hin þekkta stórverslun Harrods í London rauf milljarðs punda múrinn á síðasta ári. Veltan í versluninni fór yfir milljarð punda eða 187 milljarða kr. Þetta er mesta veltan hjá stakri verslun í Bretlandi í sögunni.

Dauði Díönu var manndráp af gáleysi

Kviðdómur í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu hefur komist að þeirri niðurstöðu að dauði hennar hafi verið morð af gáleysi vegna stórkostlegrar vanrækslu í akstri paparazzi ljósmyndara og einkabílstjóra hennar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×