Viðskipti innlent

Tapið minna og sölu­tekjur meiri en í fyrra

Máni Snær Þorláksson skrifar
Róbert Wessman þegar hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í Nasdaq First North Growth markaðnum.
Róbert Wessman þegar hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í Nasdaq First North Growth markaðnum. Vísir/Vilhelm

Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra.

Þetta kemur fram í uppgjöri Alvotech fyrir fyrri helming ársins 2023. Sölutekjur félagsins voru 3,9 milljónir dollara á fyrri helmingi síðasta ár en 22,7 milljónir í ár. Það samsvarar rúmlega 2,9 milljörðum í íslenskum krónum. 

Stjórnunarkostnaður nam 41,9 milljónum dollara á tímabilinu. Slíkur kostnaður var mun meiri á sama tímabili í fyrra eða rúmlega 139 milljónir dollara. Í tilkynningu um uppgjörið segir að lægri kostnað megi einkun rekja til minni útgjalda vegna lögfræðikostnaðar á sviði einkaleyfismála og við skráningu félagsins á markað.

Fram kemur að tekjurnar séu vegna sölu á lyfinu AVT02 í Evrópu og í Kanada. Um er að ræða hliðstæðu við lyfinu Humira. Lyfja- og matvælaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) sá sér ekki fært að veita Alvotech markaðsleyfi fyrir lyfinu í síðastliðnum júní.

„Við höfum haldið áfram að fjárfesta af krafti í framleiðslu og gæðastýringu og kappkostum enn að tryggja markaðsleyfi fyrir AVT02 í Bandaríkjunum, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við Humira í háum styrk,“ er haft eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech í tilkynningunni.

Alvotech mun halda uppgjörs- og kynningarfund á morgun. Fundurinn verður sendur út í beinu streymi á vefsíðu Alvotech.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×