Viðskipti erlent

Veðjar 1,6 milljörðum dala gegn Wall Street

Árni Sæberg skrifar
Micheal Burry var leikinn af Christian Bale í kvikmyndinni The Big Short.
Micheal Burry var leikinn af Christian Bale í kvikmyndinni The Big Short. Astrid Stawiarz/Getty

Fjárfestingarsjóður Micheals Burry hefur keypt sölurétti af sjóðum sem fylgja S&P 500 og Nasdaq 100 fyrir alls um 1,6 milljarða dala. Burry varð heimsfrægur upp úr fjármálahruninu árið 2008 þegar hann spáði réttilega fyrir um hrun húsnæðislánamarkaðarins í Bandaríkjunum.

Scion Asset Management, fjárfestingarsjóðurinn sem Burry stofnaði eftir hann hætti störfum sem læknir, keypti sölurétti fyrir tæplega 867 milljónir dala af sjóðnum SPDR S&P 500 ETF Trust og fyrir tæplega 739 milljónir í sjóðnum Invesco QQQ, sem fylgir Nasdaq 100 vísitölunni.

Söluréttir heimila handhafa þeirra að selja fjármálagerninga á fyrirframákveðnu verði.

Þetta kemur fram í 13f-gögnum frá Verðbréfaeftirliti Bandaríkjanna sem voru birt í gær. Þar segir ekki á hvaða verði söluréttirnir heimila Burry að selja en ljóst er að hann telur vísitölurnar tvær munu lækka. Í frétt Cnn um viðskiptin segir að 1,6 milljarðar dala séu um 90 prósent af eignum Scion Asset Management.

Hagnaðist gríðarlega á hruninu og var leikinn af Christian Bale

Micheal Burry var einn fárra sem sá hrun húsnæðislánamarkaðarins í Bandaríkjunum árið 2008 og veðjaði háum fjárhæðum með því að taka skortstöðu í fjár­mála­gern­ing­um honum tengdum.

Bandaríski rithöfundurinn Michael Lewis ritaði bókina The Big Short um Burry og fleiri sem tóku sömu stöð og hann árið 2010. Árið 2015 var bókin svo kvikmynduð þar sem stórleikarinn Christian Bale lék aðalhlutverkið, sjálfan Burry.


Tengdar fréttir

Læknir með Asperger einn sárafárra sem sá bankahrunið fyrir

Bandarískur læknir með einhverfu var einn sárafárra einstaklinga sem sá bankahrunið fyrir. Hann veðjaði gegn Wall Street og græddi nánast óskiljanlega háar upphæðir fyrir vikið. Hinn umdeildi Íslandsvinur Michael Lewis komst að þessu en hann segir að kapítalistarnir hafi næstum tortímt markaðshagkerfinu með eigin heimsku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×