Innlent

Mælir alls ekki með því að fólk prófi hug­víkkandi efni heima hjá sér

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Páll Magnússon geðlæknir segir að ráðstefnan hafi verið mjög áhugaverð og fyrirlestrarnir góðir.
Páll Magnússon geðlæknir segir að ráðstefnan hafi verið mjög áhugaverð og fyrirlestrarnir góðir. Stöð 2

Margir helstu vísindamenn, læknar og sérfræðingar á sviði hugvíkkandi efna héldu erindi á ráðstefnu um málefnið í dag. Rætt var um rannsóknir á efnum eins og MDMA, Sílósíbin, Ketamín og Ajúvaska og hvernig þau hafi gagnast við meðferð á geðröskunum. Geðlæknir segir rannsóknir lofa góðu en mælir gegn notkun efnanna.

Á ráðstefnuna mættu helstu sérfræðingar heims í rannsóknum á notkun hugvíkkandi efna. Fréttastofa ræddi við Pál Matthíasson geðlækni, sem segir að ráðstefnan hafi verið mjög áhugaverð. 

„Það sem stendur kannski upp úr er það, að það eru að koma fram enn frekari gögn um það að þessi hugvíkkandi efni, þegar þau eru notuð á réttan hátt, virðast skila árangri gegn ýmsum geðsjúkdómum. Hins vegar verður að leggja áherslu á það að það er enn þá meðal annars verið að rannsaka öryggi þeirra.“

Hann segir mikilvægt að hafa í huga að efnin ein og sér skuli nota sem einhvers konar tæki í stærri meðferð. Fólk taki efnin eftir mikinn undirbúning og aðhald, samhliða stöðugri viðtalsmeðferð sérfræðings. Páll mælir ekki með því að fólk fari sjálft að taka efnin.

Lögreglan fylgist með

„Ég get alls ekki mælt með því. Fólk veit í rauninni ekki hvað það er að taka og í hvaða skömmtum. Og auk þess getur upplifunin verið þannig að það þarf í rauninni fagaðila til að halda utan um og styðja fólk. Þannig að ég get alls ekki mælt með því, þetta er ekki komið á þann stað. Þetta er í rauninni enn þá á rannsóknarstigi. Og við verðum auðvitað að vera að vinna hratt í því að sjá hvort að þessi, að því er virðist, góða meðferð sé örugg og gagnist. En það verður að leyfa vísindunum að hafa sinn gang,“ segir Páll.

Eins og fyrr segir lögðu fjölmargir leið sína á ráðstefnuna í dag, þar á meðal þingmenn, heilbrigðisstarfsmenn og lögreglumenn.

Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir vert að veita málaflokknum athygli.

„Ef að þetta er að sannarlega gagnast og er að bæta við núverandi gagnreyndar meðferðir, og draga þar af leiðandi úr þjáningu, sérstaklega veikasta hópsins, þá erum við klárlega opin fyrir því. En það er náttúrulega hjá öðrum yfirvöldum sem við lítum til, lyfjastofnun landlæknisembættisins og fleiri,“ segir Ólafur Örn.

Ólafur Örn Bragason segir málaflokkinn áhugaverðan.Vísir/SteingrímurDúi

Tengdar fréttir

Löggan mætir á ráð­stefnu um hug­víkkandi efni

Söru Maríu Júlíudóttur, skipuleggjanda mikillar ráðstefnu um hugvíkkandi efni – Psycedelics in Medicine – sem fram fer í Hörpu 12. til 13. þessa mánaðar, verður að ósk sinni en fulltrúar lögreglunnar hafa boðað komu sína.

Sprengdi sig frá höfuð­kvölum, þung­lyndi og lyfja­fíkn með hjálp hug­víkkandi efna

Þórarinn Ævarsson, landsþekktur athafnamaður, segir annus horriblis nú að baki. Þórarinn fór í dýpstu dali, svartnættið eitt blasti við og hann sá aðeins eina leið út. Nefnilega þá að ljúka þessu sjálfur. Þórarinn var orðinn háður ópíóðalyfjum, þjáðist af heiftarlegum höfuðverkjaköstum og þunglyndi en með hjálp hugvíkkandi efna segist Þórarinn hafa öðlast nýtt líf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×