Viðskipti innlent

Bein út­sending: Seðla­bankinn rök­styður 75 punkta hækkun

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, munu fara yfir ákvörðun Peningastefnunefndar ásamt Þórarni G. Péturssyni, aðalhagfræðingi Seðlabankans.
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, munu fara yfir ákvörðun Peningastefnunefndar ásamt Þórarni G. Péturssyni, aðalhagfræðingi Seðlabankans. Vísir/Vilhelm

Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,75 prósentustig.

Það þýðir að meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því 5,5 prósent. Hafa þeir ekki verið hærri frá því í ágúst 2016.

Á kynningunni munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.

Horfa má á útsendinguna hér fyrir neðan.

Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar segir að verðbólguhorfur hafi áfram versnað. Þannig hafi verðbólga aukist í júlí og mælst 9,9 prósent. Gert sé ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok ársins í tæplega 11 prósent. Telur nefndin líklegt að enn þurfi herða taumhald peningastefnunnar til að tryggja að verðbólg hjaðni innan ásættanlegs tíma.

„Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“


Tengdar fréttir

Seðlabankinn hækkar stýrivexti í 5,5 prósent, ekki verið hærri í sex ár

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans verða því 5,5 prósent. Verðbólguhorfur hafa versnað samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans og er gert ráð fyrir að verðbólgan nái hámarki undir lok ársins og verði þá tæplega 11 prósent.

Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti um 0,75 prósentur

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 4,75 prósent í 5,5 prósent. Þetta er áttunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×