Erlent

Ríkur tannlæknir dæmdur fyrir að bana eiginkonunni með haglabyssu í veiðiferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Sonur (lengst til vinstri) og dóttir (lengst til hægri) Lawrence Rudolph á leið í réttarsal þann 13. júlí síðastliðinn. Bæði hafa þau stutt föður sinn í málinu.
Sonur (lengst til vinstri) og dóttir (lengst til hægri) Lawrence Rudolph á leið í réttarsal þann 13. júlí síðastliðinn. Bæði hafa þau stutt föður sinn í málinu. Ap/David Zalubowski

Auðugur bandarískur tannlæknir sem sakaður var um að hafa skotið eiginkonu sína til bana með haglabyssu í veiðileiðangri í Afríku var í gær sakfelldur fyrir morð og póstsvik. Hinn 67 ára Lawrence Rudolph var ákærður fyrir að hafa myrt Bianca Rudolph í Sambíu árið 2016 og brotið lög þegar hann leysti út 4,8 milljónir bandaríkjadala út úr líftryggingunni hennar.

Réttað var yfir Rudolph í Denver í Colorado og gæti hann átt yfir höfði sér hámarksrefsingu sem samsvarar lífstíðarfangelsi eða dauðarefsingu, af því er fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar.

Rudolph hélt fram sakleysi sínu og hefur einn verjenda hans hefur gefið út að niðurstöðunni verði áfrýjað. Málsvörnin byggði á því að eiginkona Rudolphs til 34 ára hafi skotið sjálfa sig þegar hún reyndi að pakka haglabyssunni niður í flýti, rétt fyrir heimferðina til Bandaríkjanna.

Saksóknarar sögðu þetta ómögulegt þar sem skotsárið hafi komið frá byssu sem hafi verið í sextíu sentímetra til eins metra fjarlægð frá henni. Leiðsögumaður hjónanna sagði lögreglu að Rudolph hafi afhlaðið skammbyssuna daginn fyrir atvikið en sjálfur sagðist Rudolph ekki muna hvort hann hafi gert það.

Eftir atvikið segist Rudolph hafa komið byssunni fyrir í bílskúrnum við heimkomuna til Bandaríkjanna þar sem hann hafi ekki viljað bera hana augum. Þegar hann hafi sett húsið á sölu árið 2018 hafi hann síðan tekið byssuna í sundur og greitt manni reiðufé til þess að flytja hana á brott með öðru rusli. Síðar hafi Rudolph komist að því að bandaríska alríkislögreglan væri að rannsaka dauðsfall eiginkonunnar.

Ekki viljað deila auði sínum

Hjónin voru við sportveiðar á sléttum þjóðgarðsins Kafue National Park þegar Bianca Rudolph varð fyrir skoti. Vinur hjónanna lét fulltrúa bandarísku alríkislögreglunnar vita og taldi að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað. Hann grunaði Rudolph um græsku, meðal annars vegna þess að hann vissi að Rudolph hafði reglulega haldið fram hjá eiginkonu sinni með framkvæmdastjóra tannlæknastofu sinnar.

Fréttastofa NBC greindi frá því í janúar að sami vinur hafi sagt að Rudolph hafi ekki viljað skilja vegna þess að eiginkonan gæti fengið töluvert af fjármunum hans í sinn hlut við skilnaðinn. Þá hafi hann meðal annars gert breytingar á líftryggingu eiginkonu sinnar áður en þau fóru til Afríku.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×