Erlent

Rússar gerðu hjálpargögn á leið til Mariupol upptæk

Heimir Már Pétursson skrifar
Olíubirgðastöð Rússa í Belgorod skammt handan við landamærin að Úkraínu sem Rússar segja að árásarþyrlur Úkraínuhers hafi sprengt í loft upp í morgun.
Olíubirgðastöð Rússa í Belgorod skammt handan við landamærin að Úkraínu sem Rússar segja að árásarþyrlur Úkraínuhers hafi sprengt í loft upp í morgun. AP/almannavarnaráðuneyti Rússlands

Rússneskar hersveitir hafa komið í veg fyrir að hóferðabilalest sem nálgaðist hafnarborgina Mariupol í gær geti flutt stríðshrjáða íbúa á brott og lagt hald á hjálpargögn sem ætluð voru borgarbúum, að sögn aðstoðarforsætisráðherra landsins. Rússar krefjast þess að evrópuríki greiði fyrir gas frá Rússum með rúblum frá og með deginum í dag.

Fjörutíu og fimm hópferðabílar ásamt flutningabílum með matvæli og lyf voru sendir áleiðis til Mariupol í gær eftir að Rússar sögðu Rauða krossinum að þeir myndu heimila fólki aðyfirgefa borgina. Þar eru nú um eða yfir hundrað þúsund manns í borg þar sem 430 þúsund manns bjuggu fyrir innrásina.

Sex rússneskir skriðdrekar sem úkraínski herinn sprengdi utan við Kænugarð nýlega.AP/Rodrigo Abd

Iryna Vereshchuk aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu sagði seint í gær að rússneskar hersveitir hafi komið í veg fyrir að hópferðabílarnir færu inn íborgina. Rúmlega sex hundruð manns hafi þó tekist að komast fráMariupol með einkabílum. Rússar hafi hins vegar lagt hald á 14 tonn af matvælum og lyfjum sem hafi verið ætluð borgarbúum sem sætt hafa stanslausum loftárásum í tæpan mánuð án rafmagns, húshitunar og rennandi vatns.

Aðstoðarforsætisráðherrann segir að um 45 þúsund manns frá Mariupol hafi verið neyddar til að fara til Rússlands eða svæða sem eru á valdi uppreisnarmanna í Donbashéraði rétt norður af borginni.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu ávarpar þjóð sína frá Kænugarði í gærkvöldi.AP/forsetaembætti Úkraínu

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu sagði í ávarpi sínu í gærkvöldi að Rússar hefðu dregið hluta herafla síns frá útjaðri höfuðborgarinnar og væri að safna liði sem stefndi í átt til Kharkiv, annarar fjölmennstu borgar landsins í norðurhlutanum. Þá væru þeir að auka liðsafla sinn við Maríupol og greinilega að undirbúa stórárásir á báðum stöðum.

„Þeir gera sér þó grein fyrir að þeir geta ekki staðið undir eins öflugum hernaði og á fyrra helmingi marsmánaðar,“ sagði forsetinn.

Vladimir Putin forseti Rússlands reynir að sporna á móti refsiaðgerðum Evrópuríkja með því að fara fram á að þau greiði fyrir gas með rúblum.AP/Mikhail Klimentyev

Vladimir Putin forseti Rússlands segir að frá og með deginum í dag verði óvinveitt evrópuríki að greiða fyrir gas frá Rússlandi með því að greiða inn á rússneska bankareikninga en ríkin ætla ekki að verða við því. Þetta gerir forsetinn væntanlega vegna mikils gengisfalls rúblunnar og til að bregðast við frystingu Vesturlanda á fjárhagslegum eignum Rússa.

Tony Radakin yfirmaður breska heraflans segir að í raun hafi Putin tapað stríðinu nú þegar og hann væri langt í frá sámeistari atburðarásarinnar sem hann vildi telja fólki trú um.

„Putin hefur skaðað sig og misreiknað sig á mörgum sviðum. Hann gerði sér ekki grein fyrir hvað fullveldið, lýðræðið og þjóðernisvitundin hefur skotið djúpum rótum í Úkraínu. Eins og allir valdhyggjumenn hefur hann ofmetið eigin styrkleika eins og skilvirkni rússneska heraflans,“ segir Tony Radakin yfirmaður breska hersins.


Tengdar fréttir

Úkraínuforseti hvetur til að sett verði hafnbann á Rússa um allan heim

Allt bendir til að Rússar séu að safna liði til stórsóknar í austurhluta Úkraínu. Flóttafólk sem kom til Póllands í dag segir ekkert að marka yfirlýsingar þeirra um að hernaðaraðgerðum væri lokið í norðurhluta landsins. Forseti Úkraínu skorar á ríki heims að setja hafnbann á rússnesk skip.

Merkja gríðar­lega aukningu í net­á­rásum

Sérfræðingar í tölvuöryggismálum segjast merkja gríðarlega aukningu í netárásum. Árásunum hafi fjölgað eftir innrás Rússa í Úkraínu og afleiðingar eigi enn eftir að koma fyllilega í ljós. Öflugar árásir geti valdið stöðvun á þjónustu heilu borga og bæja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×