Innlent

Lýsa yfir von­brigðum með ráða­menn og Haf­ró vegna loðnu­veiða

Atli Ísleifsson skrifar
Leitarskipin fóru víða um miðjan mánuðinn.
Leitarskipin fóru víða um miðjan mánuðinn.

Sveitarfélögin Fjarðabyggð, Vestmannaeyjar, Hornafjörður, Vopnafjörður og Langanesbyggð lýsa yfir „miklum vonbrigðum“ með að Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra, stjórnvöld og Hafrannsóknarstofnun skuli ekki hafa gefið út rannsóknarkvóta á loðnu nú þegar hrygning stofnsins hefst.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send hefur verið á fjölmiðla. Þar segir að með því að gefa út rannsóknarkvóta hefði gefist mikilvægt tækifæri til rannsókna á stofninum. Þar að auki hefði verið hægt að verja hrognamarkaði á erlendri grund fyrir íslenskar útgerðir þetta árið.

Ekki gefið tilefni til að opna fyrir veiðar

Fjöldi skipa hafa haldið til loðnuveiða síðustu vikurnar, en upp úr miðjum febrúar voru þau sex, fleiri en nokkru sinni fyrr. Leitin hefur ekki verið gefið tilefni til að opna fyrir veiðar.

Sjá einnig: Sex skip lögð upp í þriðju loðnuleitina

Í yfirlýsingu sveitarstjórnanna segir að það sé ekki síður áhyggjuefni hversu mikið skorti upp á nýjar grunnrannsóknir á loðnustofninum fyrir Ísland. Því verði stjórnvöld að bregðast við nú þegar og gera Hafrannsóknarstofnun það kleift fjárhagslega að ráðast í slíkar rannsóknir.

Vilja aukin fjárframlög

„Ekki síst var það mikið áfall að heyra að Hafrannsóknarstofnun hafi ekki fengið fjárframlag á dögunum til að stofnunin gæti vaktað loðnuna og hegðun hennar nú.

Þá geta áðurtalin sveitarfélög, sem byggja afkomu sína að stóru leiti á uppsjávarveiðum, ekki sætt sig við þau svör sem þau hafa fengið frá ráðherra í fjölmiðlum um að þau þurfi að taka á sig skellinn af loðnubresti ár eftir ár án nokkrar aðkomu eða umræðna við stjórnvöld um aðrar tímabundnar aðgerðir til að mæta slíkum áföllum. Þá er rétt að hafa í huga að áföll sem þessi hafa ekki bara áhrif á rekstur sveitarfélaganna heldur líka fyrirtækja í þeim sem og almennings og það á að vera samstarfsverkefni stjórnvalda og sveitastjórna að mæta slíku,“ segir í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×