Viðskipti innlent

Flug­mönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hluta­bóta­úr­ræði eða lækka launin sín

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Bréf Air Atlanta til flugmanna félagsins þar sem þeim eru boðin lægri kjör, valkvætt vegna kórónuveirufaraldursins.
Bréf Air Atlanta til flugmanna félagsins þar sem þeim eru boðin lægri kjör, valkvætt vegna kórónuveirufaraldursins. Vísir

Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs. 

Ríflega hundrað flugmenn voru með kjarasamning við Air Atlanta. í byrjun apríl fengu flugmenn bréf frá Air Atlanta undirritað af forstjóra félagsins og formanni Félags íslenskra atvinnuflugmanna.  Þar kemur fram að félagið hafi fengið tímabundna undanþágu frá FÍA vegna kórónuveirufaraldursins. Þátttaka flugmanna í undanþágunni sé valkvæð. Fjórir kostir voru í boði:

  1. Flugmenn skerði laun um fimmtung og haldi óbreyttu vinnufyrirkomulagi.
  2. Flugmenn haldi óskertum launum og vinni 27% umfram vinnuskyldu 21/21 kerfisins eða 19 daga í mánuði án þess að slíkt myndi dagaskuld við flugmanninn.
  3. Flugmenn fari með með starfshlutfall niður í allt að 25% og halda sig heima, óunnir dagar geti verið nýttir síðar af hálfu félagsins samkvæmt samkomulagi. Mismunandi útfærslur af hlutastarfaleið verða gerðar aðgengilegar fyrir flugmenn.
  4. Þjálfunarflugmenn afsali sér þjálfunarálagi frá og með 1. maí 2020 og því gildi ekki hefðbundinn þriggja mánaða uppsagnafrestur eins og hann kemur fyrir í kjarasamningi.Undanþágan gildir frá 1. apríl til 31. maí og er ekki fordæmisgefandi.
Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta segir að tekjur félagsins hafi dregist saman um 50% milli ára og því hafi kjör stjórnenda og annarra starfsmanna verið skert.Vísir/Sigurjón

Baldvin Már Hermannsson  forstjóri Air Atlanta segir að farþegaflug hafi alveg lagst niður, það hafi verið megintekjulind félagsins og því þurfi að skera niður kostnað.

„Það voru sex flugmenn sem ákváðu að fara á hlutabótaleið stjórnvalda en um hundrað ákváðu að halda óbreyttum launum og vinna meira,“ segir Baldvin. 

Aðspurður um hvort það sé þá ekki næg vinna fyrir alla flugmenninna svarar Baldvin.

„Við tókum þá leið að við leitum til allra til að hagræða hjá félaginu. Misjafnar leiðir henta ólíkum aðilum. Við erum með starfsfólk og flugmenn sem eru með langveik börn og annað og eiga þá erfitt með að fara út í þrjár vikur og koma svo heim og fara í sóttkví í tvær vikur,“ segir Baldvin.

Aukin eftirspurn er eftir fraktflugi í heiminum og hefur það aukist hjá félaginu.

Það er 50% aukning á fraktflugi hjá félaginu frá því í fyrra. En það skýrist fyrst og fremst af því að við erum með sex vélar núna í stað fjögurra í fyrra. Fraktflugið hefur sannarlega aukist en heildartekjutap félagsins er samt sem áður í kringum 50%,“ segir Baldvin. 

Baldvin segir að allir stjórnendur hafi tekið á sig launalækkanir og þá séu alls 60 starfsmenn fyrirtækisins á hlutabótaleið stjórnvalda.


Tengdar fréttir

Icelandair tapaði 30,9 milljörðum

Lausafjárstaða Icelandair Group nam 40 milljörðum króna, 281 milljón dollara, í lok mars að því er fram kemur í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri félagsins sem birt var í kvöld. Alls tapaði félagið 30,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×