Erlent

Hætt við að framfylgja dauðarefsingum við samkynhneigð í Brúnei

Kjartan Kjartansson skrifar
Bolkiah soldánn tilkynnti um að dauðarefsingum yrði ekki framfylgt en varði þó lögin í gær.
Bolkiah soldánn tilkynnti um að dauðarefsingum yrði ekki framfylgt en varði þó lögin í gær. Vísir/EPA
Stjórnvöld í Brúnei hafa fallið frá því að framfylgja lögum sem leggja dauðarefsingu við samkynhneigð í kjölfar áberandi mótmæla og gagnrýni á alþjóðavísu. Lögin verða áfram í gildi en tímabundin stöðvun á að þeim hefur verið framlengd.

Hassanal Bolkiah soldán framlengdi tímabundna stöðvun á dauðarefsingum sem hefur verið í gildi frá 1957 í gær. Upphaflega ætluðu stjórnvöld að framfylgja nýrri og strangri túlkun á sjaríalögum múslima. Samkvæmt henni hefðu þeir sem gerðust „sekir“ um samkynhneigð eða hjúskaparbrot getað verið grýttir til dauða.

Fyrirætlanir Brúnei vöktu hörð viðbrögð. Frægðarfólk á vesturlöndum eins og leikarinn George Clooney og söngvarinn Elton John tóku þátt í mótmælum og hvöttu til þess að fólk sniðgengi Brúnei og fyrirtæki soldánsins.

Soldáninn fullyrti í gær að misskilningur hafi ríkt um framkvæmd laganna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Gildi þeirra ætti eftir að verða ljóst. Þrátt fyrir að hann tilkynnti um að dauðarefsingum yrði ekki beitt er samkynhneigð enn refsiverð í Brúnei. Við henni liggur allt að tíu ára fangelsisvist.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×