Körfubolti

George vill svör frá Nike um hvað kom fyrir skó Zion

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zion meiddur á gólfinu og sólinn svo gott sem farinn af skónum.
Zion meiddur á gólfinu og sólinn svo gott sem farinn af skónum. vísir/getty
Skórnir sem Zion Williamson spilaði í er sólinn fór undan skónum og hann meiddist eru skór sem bera nafn Paul George og heita PG 2.5. Þetta atvik var hræðileg auglýsing fyrir skóna og Nike.

„Fyrst af öllu þá óska ég Zion alls hins besta í bataferlinu. Sjálfur veit ég ekki hvað gerðist fyrir skóna. Mér þykir vænt um þessa skó og ég bað Nike um svör við því hvað gerðist,“ sagði George.





„Skórnir mínir hafa alltaf verið vinsælir og margir notað þá án þess að nokkuð svona hafi komið fyrir. Það er því erfitt að horfa upp á svona atvik.“

Aðeins voru liðnar 33 sekúndur af leik Duke og North Carolina er sólinn fór undan skónum með þeim afleiðingum að Zion meiddist á hné.

Hlutabréf í Nike fóru niður um eitt prósent á mörkuðum í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×