Innlent

Bönnuðu vinnu við City Park Hótel í október þar sem aðstæður þóttu lífshættulegar starfsmönnum

Birgir Olgeirsson skrifar
Árni Valur Sólonsson, eigandi City Park Hotel, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tókust á í morgun.
Árni Valur Sólonsson, eigandi City Park Hotel, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tókust á í morgun. Vísir/Vilhelm
Snörp orðaskipti eiganda City Park Hotel í Ármúla og formanns stéttarfélagsins Eflingar í hádeginu hafa vakið mikla athygli. Snerust deilur þeirra um að starfsmenn hótelsins fengju að greiða atkvæði um boðun verkfalls þeirra hótelstarfsmanna sem eru í Eflingu.

Er þetta ekki í fyrsta skiptið sem málefni City Park Hotel rata í fjölmiðla en í október síðastliðnum ákvað Vinnueftirlitið að banna alla vinnu hjá City Park Hótel. Hafði eftirlitsheimsókn Vinnueftirlitsins leitt í ljós að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna hefði ekki verið í samræmi við lög og reglur.

Vinnueftirlitið mat það svo að veruleg hætta væri fyrir líf og heilbrigði starfsmanna á byggingarvinnustaðnum.

Var um að ræða byggingarframkvæmdir við hótelið sem voru í gangi á verkstað án byggingarleyfis frá Reykjavíkurborg, að því er fram kom í ákvörðun Vinnueftirlitsins, og merki um að starfsmenn sofi og hafist við á verkstað.

Framkvæmdastjórinn og formaðurinn deildu ansi harkalega fyrr í dag.Vísir/Vilhelm
Við heimsókn Vinnueftirlitsins á verkstað þann 12. október í fyrra var öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir verkið ekki til staðar.

Ástand rafmagnsmála á verkstað var mjög hættulegt að mati Vinnueftirlitsins en rafmagnssnúrur voru hangandi niður úr loftum og ótryggir rafmagnskaplar á milli hæða og í rafmagnstöflu. Slysahætta var af þessu fyrir starfsmenn.

Þá taldi Vinnueftirlitið umferðarleiðir á milli á verkstað ófullnægjandi. Starfsmenn þurftu að fara um brattan stiga án handriða. Voru óvarin op í gólfi og við umferðarleiðir og vantaði fallvarnir við op á gólfi. Skapaði þetta slysahættu fyrir starfsmenn að mati eftirlitsins.

Þá var notkun persónuhlífa ábótavant þar sem starfsmenn voru ekki í öryggisskóm né með hjálma við vinnu sína. 


Tengdar fréttir

Segir ræstingafólk tilbúið í aðgerðir

„Eins og ég sé stöðuna þurfa atvinnurekendur að finna fyrir þrýstingi, og finna fyrir því að við munum gera allt í okkar valdi til að breyta stöðunni,“ segir Zsófia Sidlovits, ræstitæknir á Hótel Borg og Apóteki hóteli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×