Innlent

Verkalýðsforystan lýsir miklum vonbrigðum og talar um smánarlegar skattalækkanir

Heimir Már Pétursson skrifar
Viðbrögð aðila vinnumarkaðarins við tillögum stjórnvalda eru gerólík. Samtök atvinnulífsins eru mjög jákvæð út í tillögurnar en forystufólk verkalýðshreyfingarinnar lýsa sárum vonbrigðum. Og svo mikil voru vonbrigðin hjá Vilhjálmi Birgissyni varaforseta Alþýðusambandsins að hann rauk á dyr í forsætisráðuneytinu áður en fundinum með ráðherrum lauk.

„Ég skal alveg fúslega viðurkenna að ég bjóst við umtalsvert meiru en þarna var síðan raunin. Því við erum búin að leggja gríðarlega mikla vinnu á okkur við að reyna að finna leiðir og lausnir til að forða íslenskum vinnumarkaði frá hörðum verkfallsátökum,” segir Vilhjálmur. Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins er mun jákvaæðari út í aðgerðir stjórnvalda.

„Ef maður leggur heildstætt mát á þetta er margt mjög áhugavert í þessum pakka. Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé eitthvað sem hægt er að vinna með við úrlausn þessarar deilu,” segir Halldór Benjamín. Að loknum fundi með stjórnvöldum komu verkalýðsleiðtogar saman til að bera saman bækur sínar. En næsti samningafundur verkalýðsfélaganna fjögurra sem vísað hafa til ríkissáttasemjara er á fimmtudag og Starfsgreinasambandið tekur ákvörðun um það í kvöld eða fyrramálið hvort sextán aðildarfélög vísi deilu sinni einnig til ríksisáttasemjara.





Drífa segir að næst muni verkalýðsfélögin beina kröftum sínum að Samtökum atvinnulífsins.Vísir/vilhelm
Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins segir að nú muni félögin væntanlega beina kröftum sínum að Samtökum atvinnulífsins. 

„Það sem við vonuðumst til að gerðist væri að þetta útspil stjórnvalda í skattamálum myndi liðka fyrir samningaviðræðum sem eru í gangi við samtök atvinnulífsins. Þetta mætti ekki þeim væntingum. Samninganefnd ASÍ sem stendur saman af formönnum  landssambanda og stærstu félaga var einhuga í því að þetta væru mikil vonbrgiði,” segir Drífa.   

Tilboð og gagntilboð gengu fram og til baka hjá ríkissáttasemjara í síðustu viku en þeim var hafnað af báðum deiluaðilum. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur deiluaðila komna nær kjarna málsins varðandi launaliðinn. Legið hafi fyrir að lausnin yrði samsett annars vegar með tilboði atvinnurekend og hins vegar með útspili ríkisvaldsins. 

„Nú hafa bæði atvinnurekendur og ríkisvaldið sýnt á spilin getum við sagt. Og ég er vongóður um að það takist að moða úr því lausn sem allir geta lifað við,” segir Halldór Benjamín. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir mestu vonbrigðin vera með smánarlega skattalækkun til fólks á lægstu laununum. 

„Ég var sannarlega að vona að stjórnvöld væru búin að vakna til meðvitundar um þessa háværu og miklu kröfu. Sem sannarlega endurómar frá grasrótinni sjálfri,” segir formaður Eflingar.


Tengdar fréttir

Kynnir breytingar í skattamálum síðdegis

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í ráðuneytinu í dag klukkan 17 þar sem hann mun kynna fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um breytingar í skattamálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×