Menning

Alltaf verið himinlifandi með uppsetninguna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bergrún Íris er með myndir úr tveimur nýjustu bókum sínum á sýningunni.
Bergrún Íris er með myndir úr tveimur nýjustu bókum sínum á sýningunni. Fréttablaðið/Ernir
Sýningin Þetta vilja börnin sjá! verður opnuð í sautjánda sinn í Borgarbókasafninu, menningarhúsi Gerðubergi á morgun, sunnudag, klukkan 14. Þar eru myndlýsingar í íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2018 og sýningin birtir glöggt þá fjölbreytni og fagmennsku sem er að finna í íslenskri barnabókaútgáfu.

Að þessu sinni taka nítján myndhöfundar þátt. Einn þeirra er Bergrún Íris Sævarsdóttir sem oft hefur sýnt áður, enda er hún mikilvirk og myndskreytir bækur fyrir marga en í þetta sinn kveðst hún einungis vera með myndir úr eigin bókum á sýningunni. „Þær eru úr nýjustu bókunum mínum, Næturdýrin og Langelstur í leynifélaginu sem er framhald af bók sem kom út í fyrra og hét Langelstur í bekknum,“ útskýrir hún.

Bergrún Íris er ekki búin að sjá hvernig myndirnar taka sig út á veggnum í Gerðubergi. „En ég hef oft tekið þátt áður og hef alltaf verið himinlifandi með uppsetninguna. Svo er líka svo skemmtilegt að sýningin fer hringinn í kringum landið.“ Það passar. Í Gerðubergi stendur hún til 31. mars en fer þá á flakk og fyrsti viðkomustaður verður Amtsbókasafnið á Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×