Viðskipti innlent

Sætanýtingin hjá WOW air 85 prósent í nóvember

Atli Ísleifsson skrifar
Á fjórða hundrað manns misstu vinnuna hjá WOW air í síðustu viku.
Á fjórða hundrað manns misstu vinnuna hjá WOW air í síðustu viku. Vísir/Vilhelm
Sætanýting hjá WOW air var 85 prósent í nóvember en var 88 prósent á sama tíma í fyrra. Í tilkynningu frá félaginu segir að WOW hafi flutt 197 þúsund farþega til og frá land­inu í síðasta mánuði eða um 0,5 prósent fleiri farþega en á sama tíma í fyrra.

„Um var að ræða 4% aukn­ingu á fram­boðnum sætis­kíló­metr­um miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá hefur hlutfall tengifarþega aukist en í ár var hlutfallið 53% í nóvember miðað við 49% á sama tíma í fyrra. Það sem af er ári þá hef­ur WOW air flutt rúmlega 3,3 millj­ónir farþega,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Skúla Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, að starfsfólk WOW air eigi heiður skilinn fyrir vel unnin störf við mjög erfiðar aðstæður. Sé hann mjög þakklátur fyrir þann meðbyr sem félagið fái þessa dagana.

9,3 milljarðar

Bandarískja fjárfestingafélagið Indigo Partners LLC og WOW komust að samkomulagi um það í síðustu viku að fyrrnefnda félagið myndi fjárfesta í flugfélaginu. Fjárfesting Indigo gæti numið allt að 75 milljónum Bandaríkjadala, um 9,3 milljörðum króna. Í yfirlýsingu frá var ítrekað að enn eigi þó eftir að uppfylla ýmis skilyrði svo að fjárfestingin gangi í gegn.

111 fastráðnum starfsmönnum WOW air var sagt upp í síðustu viku, auk þess að samningar við verktaka og tímabundna starfsmenn voru ekki endurnýjaðir. Alls voru það á fjórða hundrað manns sem misstu vinnuna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×