Innlent

Vilja koma kísilverinu í Helguvík í gang

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Þrátt fyrir að forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hafi enga trú á að rekstur kísilmálverksmiðju í Helguvík komist á fót aftur ætlar nýtt rekstrarfélag að fjárfesta fyrir fjóra komma fimm milljarða í uppbyggingunni. Stjórnarformaður félagsins segir að leitað hafi verið allra leiða til þess að starfsemin geti verið í sátt við íbúa svæðisins.

Eins og frægt er, er saga kísilmálmverksmiðju United Silicon ein hörmungarsaga allt þar til Umhverfisstofnun stöðvaði rekstur verksmiðjunnar í september í fyrra. Arion banki gekk að veðum sínum í verksmiðjunni í febrúar á þessu ári og hefur síðan þá unnið að því að bjarga því sem bjargað verður. Stofnað hefur verið félag um rekstur verksmiðjunnar, Stakksberg ehf., sem hefur tilkynnt að leggja eigi fjóra komma fimm milljarða í að koma verksmiðjunni í gang.





Þórður Ólafur Þórðarson, stjórnarformaður Stakkbergs ehf.Vísir/Stöð 2
Stjórnarformaður nýs félags segir að eitt stærsta vandamál verksmiðjunnar hafi verið að búnaður sem átti að taka við málmi úr ofni , hafi verið of veikburða og gefið sig ítrekað sem orsakaði framleiðslustopp en fjallað var um það ítrekað í fjölmiðlum.

„Hún var raunverulega van fjárfest frá upphafi, þannig að það var hreinlega kostað of litlu til við bygginguna á mannvirkinu,“ sagði Þórður Ólafur Þórðarson, stjórnarformaður Stakksberg ehf.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag kvaðst forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar efins að nýju félagi tækist að koma verksmiðjunni í rekstur. Þórður segir það eiganda félagsins, Arion banka, mikilvægt að skilja við verkefnið að tryggt sé að verksmiðjan starfi með eðlilegum hætti og í sátt við umhverfi sitt.

„Við höfum frá því að verksmiðjan var kyrrsett í byrjun september í fyrra og  í rauninni allt fram til þessa dags lagt okkur í framkróka við það að verkefninu færustu sérfræðinga til þess að aðstoða okkur. Greina vandann og leggja mat á það hvernig verður bætt úr á þann  veg að það eigi ekki að vera vandræði af þessari verksmiðju í framtíðinni,“ sagði Þórður.

Nýr eigandi verksmiðjunnar hefur boðað til íbúafundar í  Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í kvöld og hefst fundurinn klukkan átta þar sem staðan og framtíðar möguleikar verða lagðir á borð en Þórður segir vaxandi eftirspurn efir kísilmálmi í heiminum. Í fullri stærð og fulla framleiðslugetu á verksmiðjan í Helguvík að skapað á bilinu 150-200 varanleg störf og þangað ætlar nýtt félag sér.

„Við ætlum að gera það já, vissulega. Við viljum standa að þessu verkefni þannig að í framtíðinni geti þetta fyrirtæki starfað án þess að valda íbúum Reykjanesbæjar ama,“ sagði Þórður.


Tengdar fréttir

Efins þrátt fyrir fögur fyrirheit í Helguvík

Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur litla trú á því, í ljósi sögunnar, að kísilmálmverksmiðjan í Helguvík fari aftur í rekstur þrátt fyrir að nýtt rekstrarfélag ætli að leggja milljarða í úrbætur. Nýtt rekstrarfélag hefur boðað til íbúafundar i kvöld um framtíð verksmiðjunnar.

Fá tækifæri til að hlusta betur á íbúana

Eigendur kísilverksmiðju í Helguvík ætla að verja 4,5 milljörðum í úrbætur og til að tryggja rekstur hennar. Boðað er til íbúafundar um málefni verksmiðjunnar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×