Viðskipti erlent

Olíuverð hækkar á ný

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bílstjóri fyllir á tankinn í Teheran. Þvinganir Bandaríkjamanna gegn Íran hafa ekki haft jafn mikil áhrif á olíuverð eins og spár höfðu gert ráð fyrir.
Bílstjóri fyllir á tankinn í Teheran. Þvinganir Bandaríkjamanna gegn Íran hafa ekki haft jafn mikil áhrif á olíuverð eins og spár höfðu gert ráð fyrir. Getty/Anadolu
Olíuverð hefur hækkað í dag og er nú komið aftur yfir 70 dali á tunnuna. Hækkunina má rekja beint til ummæla orkumálaráðherra Sádí-Arabíu þess efnis að stærstu olíuframleiðendur heims hefðu sæst á að draga verulega úr olíuframleiðslu á næsta ári.

Ráðherrann, Khalid al-Falih, sagði í samtali við fréttamenn að loknum fundi OPEC-ríkjanna um helgina að líklega þyrfti að minnka framleiðsluna um næstum milljón tunnur á dag. Olíuverð hefur lækkað mikið síðustu vikur eftir að hafa náð fjögurra ára hámarki í lok september. Þá kostaði tunnan rúmlega 80 dali en hefur síðan fallið niður fyrir 70.

Ummæli orkumálaráðherrans urðu til þess að snúa við þessari þróun. Olíutunnan er nú föl á rúman 71 bandaríkjadal og allt virðist stefna í að verðhækkunin verði sú mesta í rúman mánuð.

Sjá einnig: Skörp lækkun á olíuverði ekki skilað sér



OPEC-ríkin féllust á það í sumar að auka framleiðslu sína um rúmlega milljón tunnur með það fyrir augum að slá á fyrirséða verðhækkun. Í upphafi síðasta mánaðar voru uppi háværar vangaveltur um áhrif viðskiptaþvingana Bandaríkjanna á Íran og óttuðust greinendur að olíutunnan kynni að að rjúfa 100 dala múrinn.

Khalid al-Falih á fundi Opec í sumar, þegar tekin var ákvörðun um að auka olíuframleiðslu um milljón tunnur á dag.Getty/Andalou
Það gerðist þó ekki heldur tók olíuverð að lækka - og það nokkuð skarpt. Vísir greindi þannig frá því fyrir helgi að hækkunin hafi numið næstum 17 prósentum á örfáum vikum. Fram kemur í umfjöllun Guardian um málið að þessa lækkun megi rekja til nokkurra þátta; ekki síst undanþága sem Bandaríkjamenn hafa veitt 8 ríkjum þannig að þau geti áfram keypt olíu af Íran, mikilli framleiðslu í Bandaríkjunum og spám sem gera ráð fyrir hægari vexti eftirspurnar en áður var talið.

Orkumálaráðherra Sádí-Arabíu minntist einmitt á þessar undanþágur Bandaríkjanna í máli sínu í gær. „Viðskiptaþvinganirnar höfðu ekki jafn mikil áhrif á markaðinn og spár gerðu ráð fyrir,“ sagði Falih.

„Við munum þurfa að minnka framleiðsluna um næstum 1 milljón tunna sé miðað við framleiðsluna í október. Það er samhljómur um að það verði að gera allt til þess að ná jafnvægi á markaðnum.“

Greinendur útiloka ekki að lækkunarhrinan kunni að vera búin og að væntanlegar aðgerðir OPEC-ríkjanna komi til með að slá á frekari sveiflur á næstunni. Rétt er þó að taka fram að engin formleg ákvörðun um breytingar á olíuframleiðslu hafa verið teknar. Það verður líklega ekki gert fyrr en á næsta fundi OPEC-ríkjanna, sem fram fer í Vínarborg þann 6. desember næstkomandi.


Tengdar fréttir

Skörp lækkun á olíuverði ekki skilað sér

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið á nokkrum vikum, en engin merki sjást enn um það hér á landi. FÍB telur hinsvegar að þetta veiti olíufélögunum hér heima ótvírætt svigrúm til verðlækkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×