Viðskipti innlent

Systkini opna mexíkóskan stað í Vesturbænum

Bergþór Másson skrifar
Hér verður Chido staðsettur.
Hér verður Chido staðsettur. Mynd/Já.is
Mexíkóski veitingastaðurinn Chido opnar í Vesturbænum í lok sumars. Boðið verður upp á „háklassa skyndibita“ að sögn Guðmundar Óskars Pálssonar, eiganda Chido. Hann og Helgi Kristinn Halldórsson reka nú þegar þrjá staði í Danmörku en sá fyrsti á Íslandi mun nú opna á Ægisíðunni.

Fyrsti staður Chido opnaði í Árósum fyrir um það bil þremur árum. Guðmundur og Helgi kynntust í handboltahópi Íslendinga í Árósum, þar þróaðist vinskapur sem leiddi síðan til viðskiptasambands. Fyrsti staðurinn opnaði fyrir um það bil þremur árum.

„Og síðan gekk fyrsti staðurinn bara svona líka ágætlega þannig við opnuðum annnan stað hérna úti ári seinna og svo fljótlega eftir það þriðja staðinn í Álaborg,“ segir Guðmundur.

Stefnt er að því að mexíkóski staðurinn Chido opni í lok ágúst.

Æskusjoppan endurlífguð

Guðmundur og Helgi munu ekki sjá um rekstur Chido á Íslandi, heldur mun systir hans Guðmundar, Vigdís Ingibjörg Pálsdóttir reka staðinn.

Guðmundur segist hafa fengið tilfinningu fyrir því að það væri gat á markaðnum fyrir aðeins hærri gæða mexíkóskan skyndibita en þekkist hérlendis og þess vegna slegið til að opna Chido á Íslandi.

Chido opnar á Ægisíðunni, þar sem veitingastaðurinn Borðið var áður, og sjoppan 107 þar á undan. Aðspurður að því hvers vegna Vesturbærinn varð fyrir valinu segir Guðmundur:

„Fyrir sjálfan mig var þetta heillandi þar sem þetta var sjoppan mín þegar ég var lítill, búinn að vera þarna ansi oft á yngri árum. Það er ekki mikið um high quality skyndibita á svæðinu, við þurfum ekki að rífa neitt út eða endurbyggja, það eru bílastæði þarna og þetta er á leiðinni milli Seltjarnessins og Vesturbæjar.“

Þrír Chido-staðir eru í Árósum en staðurinn á Ægisíðu verðu sá fyrsti á Íslandi.

Vesen á vínveitingaleyfi

Veitingastaðurinn Borðið, sem opnaður var í húsnæðinu árið 2016, barðist fyrir vínveitingaleyfi í langan tíma. Ægisíða var ekki talin aðalgata í gildandi aðalskipulagi og átti Borðið þess vegna erfitt með að fá vínveitingaleyfi. Chido ætti hinsvegar ekki að lenda í vandamálum með það, þar sem Borðið fékk loksins vínveitingaleyfi eftir tveggja ára bið. Vigdís segir að Chido muni bjóða upp á áfengi og ætla þau að sækja um vínveitingaleyfi.

Verðlag verður samkeppnishæft við aðra skyndibitastaði Reykjavíkur og mun matseðillinn vera að einhverju leyti tekin frá stöðunum í Danmörku, þar sem tacos, burritos og salöt leika aðalhlutverk.

„Án þess að gefa upp of mikið, verður matseðillinn svipaður og í Danmörku en staðurinn heima er aðeins stærri, við erum með meira pláss og stærra eldhús þannig það verða nýjungar sem eru ekki í Danmörku. Ég get ekkert gefið upp um verð strax en Chido leggur upp með það í Danmörku að bjóða upp á value, gæðavöru á góðu verði.“ segir Vigdís.

Vigdís segir stefnuna setta á opnun Chido í lok ágúst en nefnir þó að maður geti aldrei nákvæmlega fest fastan dag svona langt fram í tímann.


Tengdar fréttir

Ballið búið á Borðinu

Aðstandendur veitingastaðarins Borðsins sem stendur við Ægissíðu í Vesturbæ Reykjavíkur hafa ákveðið að loka staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×