Menning

Ætlar að verða hinn íslenski Michael Bublé: Jafnvígur á söng og fiðluleik og á leið í Carnegie Hall

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pétur Úlfarsson mun í kvöld troða upp í einum af sölum Carnegie Hall.
Pétur Úlfarsson mun í kvöld troða upp í einum af sölum Carnegie Hall.
Hinn átján ára gamli Pétur Úlfarsson mun í kvöld troða upp í einum af sölum Carnegie Hall, tónlistarhússins í New York.

Pétur bar sigur út býtum í alþjóðlegri tónlistarkeppni á dögunum en í verðlaun var að spila í einu frægasta tónlistarhúsi heimsins. Það sem er sérstakt við Pétur, fyrir utan að vera afar fær tónlistarmaður, er að hann er jafnvígur á fiðluleik og söng

„Ég hef verið í tónlistarnámi frá því að ég var þriggja ára og byrjaði á fiðlu. Ég fór síðan í drengjakór þegar ég var átta ára og þá hófst söngnám mitt,“ segir Pétur í Bítinu á Bylgjunni en viðtalið var tekið á mánudagsmorgun.

Hann þakkar móður sinni fyrir að hafa sett sig í kennslu og í raun búið til þennan áhuga. Hann lærði í Suzuki-tónlistarskólanum en að neðan má sjá frammistöðu frá honum frá árinu 2010.

Söngurinn hafi bæst við þegar hann byrjaði í drengjakór en hann hefur nú verið í klassísku söngnámi í níu ár. Kappinn tók þátt í sinni fyrstu alþjóðlegu keppni fyrir tæpum þremur árum og hefur tekið þátt í þeim nokkrum síðan og unnið til verðlauna.

Í framhaldi af góðum árangri hefur honum verið boðið að keppa í fleiri alþjóðlegum keppnum, meðal annars þeirri sem hann vann nú og fær fyrir vikið performansinn í kvöld í Carnegie Hall í kvöld.

Að neðan má sjá Pétur flytja Du bist die Ruh við undirleik Kristins Arnar Kristinssonar.

Pétur hyggur á framhaldsnám í Bandaríkjunum í haust og hefur verið í prufum í skólum vestanhafs eftir áramótin.

Hann er að velta möguleikunum fyrir sér en honum standa nú þegar tveir skólar til boða.

„Ég er búinn að vera í prufuferlinu í Bandaríkjunum og stefni á að fara út söngnám í haust.“

Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Pétur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×