Menning

Sé Ishmael á hverju götuhorni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kristín Helga hlaut Fjöruverðlaunin fyrir bók sína Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels, fyrir skemmstu. Þá var þessi mynd tekin.
Kristín Helga hlaut Fjöruverðlaunin fyrir bók sína Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels, fyrir skemmstu. Þá var þessi mynd tekin. Vísir/Hanna
Þetta verður spjall um stöðu mála í veröldinni. Við munum ræða flóttamannaneyðina,“ segir Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur um spjall þeirra Evu Maríu Jónsdóttur í Gerðubergi annað kvöld, miðvikudag, sem hefst klukkan 20. Dagskráin er liður í bókakaffi Borgarbókasafnsins en vormisserið verður helgað fjölmenningarstarfi þess.

Eva María er verndari UN Women á Íslandi og ferðaðist á vegum þeirra samtaka til Zaatari-flóttamannabúðanna í Jórdaníu á síðasta ári en Kristín Helga er höfundur bókarinnar Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels sem hefur reynst bæði börnum og fullorðnum áhrifarík lesning.

„Ég hef sjálf ekki farið í flóttamannabúðir en ég sé Ishmael og hans fólk á hverju götuhorni um alla Evrópu,“ segir Kristín Helga, sem einmitt er nýlent á Keflavíkurflugvelli þegar þetta samtal fer fram. „Ég vinn alltaf rannsóknarvinnu við gerð hverrar bókar en aldrei eins og þessarar, þar setti ég mig dálítið í gömlu blaðamannastellingarnar og aflaði gagna og efnis. Tók mörg viðtöl við Sýrlendinga sem búa hér á landi, suma nýkomna og aðra sem hafa verið hér lengi. Annað væri virðingarleysi við efnið. Eiginlega allt sem gerist í sögunni er byggt á raunverulegum atburðum en svo færi ég það vissulega í minn búning.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×