Viðskipti innlent

Fær ekki aðgang að kerfi Vodafone

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Síminn kærði málið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Síminn kærði málið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Vísir/Vilhelm
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur hafnað kröfu Símans um að breytingar verði gerðar á sátt Samkeppniseftirlitsins við Fjarskipti (Vodafone) vegna kaupa fyrirtækisins á rekstri 365 miðla. Síminn krafðist þess að fá heildsöluaðgang að sjónvarpsrásum Vodafone líkt og nýjum og smærri keppinautum Vodafone var veitt.

Þann 9. október síðastliðinn heimilaði Samkeppniseftirlitið kaup Vodafone á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf. Samruninn er háður skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið og samrunaaðilar gerðu sátt um.

Meðal þeirra skilyrða sem Vodafone gekkst undir vegna samrunans var að veita nýjum og smærri keppinautum tímabundinn heildsöluaðgang að mikilvægum sjónvarpsrásum og dreifikerfi Vodafone fyrir sjónvarp.

Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í málinu og krafðist þess að breytingar yrðu gerðar á þeim skilyrðum sem voru sett samrunanum. Krafðist Síminn þess að skilgreiningu skilyrðanna um svokallaða nýja og smærri keppinauta yrði breytt þannig að skilyrðið um heildsöluaðgang að sjónvarpsrásum Vodafone næði einnig til Símans. Taldi Síminn jafnframt að Samkeppniseftirlitið hefði brotið gegn andmælarétti og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við rannsókn málsins.

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafnaði hins vegar kröfu Símans um breytingar á sátt eftirlitsins við Vodafone. Tók áfrýjunarnefndin meðal ananrs fram að ekki verði „annað séð en að þau skilyrði sem samrunanum voru sett með sáttinni séu reist á málefnalegum grunni og að með þeim megi koma í veg fyrir þau skaðlegu áhrif á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði sem samruninn var ella líklegur til að hafa í för með sér.“ Þá var það jafnframt mat nefndarinnar að málsmeðferð við rannsókn samrunans hafi verið í samræmi við kröfur stjórnsýslulaga.

Vísir er í eigu Fjarskipta hf.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×