Menning

Vill ná sömu stemningu og í sveitakirkju

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigríður Ósk, Ágúst, Hallveig, Lenka og Sigurður ætla að skapa hátíðlegt andrúmsloft í kirkjunni.
Sigríður Ósk, Ágúst, Hallveig, Lenka og Sigurður ætla að skapa hátíðlegt andrúmsloft í kirkjunni. Vísir/Anton Brink
Lokaæfingin áðan var æðisleg. Nú mega jólin koma fyrir mér,“ segir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir söngkona glaðlega þegar hún er spurð út í jólatónleikana sem hún stendur fyrir í Seltjarnarneskirkju annað kvöld, föstudag, og hefjast klukkan 20. Hún segir þá fara fram við tindrandi kertaljós og heita Sígild jól. „Ég stefni að því að gera þá að árvissum viðburði og fá til liðs við mig hina ýmsu félaga mína úr söngvarastétt,“ segir hún.

Í ár syngja með Sigríði Ósk þau Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Ágúst Ólafsson barítón. Um meðleik sjá Lenka Mátéová orgelleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Níels T. Girerd, betur þekktur sem Nilli, verður kynnir kvöldsins.

 

„Hugmyndin hjá mér er að reyna að ná svipaðri stemningu og í sveitakirkjum. Þar skapast svo mikil nánd milli áheyrenda og flytjenda. Þess vegna er líka bara söngur og orgel, reyndar bætum við sellói við til að ná meiri dýpt,“ segir Sigríður Ósk.



Er þá ekki Seltjarnarneskirkja óþarflega stór? „Nei, hún er nefnilega ekki svo stór og orgelið er niðri sem er stór þáttur í því að ná þeirri nánd sem við viljum. Við héldum tónleika þar á þessum tíma í fyrra, þá upplifðum við einstaka stemningu og jólaandinn mætti. Við erum að vona að það gerist aftur.“

 

En hvað er á dagskránni? „Það eru sálmar, íslensk og erlend jólalög og þjóðlög og við skjótum líka inn gullmolum úr óperum eftir Mozart og Händel. Meðal annars syngjum við tríó úr Così fan tutte sem er eitt fallegasta tríó sem Mozart samdi. Einnig syngjum við Hallveig saman Heims um ból. Það er útsetning sem hún Sigríður Ella, söngkennarinn minn, gróf upp. Hún söng hana þegar hún var lítil. Alveg ótrúlega falleg. Við vitum ekki eftir hvern sú útsetning er, þetta eru gamlar nótur.“



Sigríður Ósk segir að Lenka, Sigurður og hún hafi æft í nóvember því þau hafi farið með hluta dagskrárinnar til Strassborgar í Frakklandi á opnunarhátíð stærsta jólamarkaðar í Evrópu þar sem Ísland er heiðursgestur.

„Við komum fram í Cathredal Notre Dame, risastórri kirkju í miðri borginni. Þetta voru opnir tónleikar, allir velkomnir og kirkjan fylltist næstum. En ljósin voru svo sterk á okkur flytjendunum að við sáum ekki neitt. Reyndum bara að finna fyrir fólkinu,“ lýsir hún og lofar því að lýsingin verði notalegri í Seltjarnarneskirkju annað kvöld klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×