Viðskipti innlent

„Kannski vorum við ekki réttu mennirnir í þetta“

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen sjá fyrir sér að Græna herbergið verði opnað á nýjan leik.
Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen sjá fyrir sér að Græna herbergið verði opnað á nýjan leik. Vísir/Stefán
Græna herbergið við Lækjargötu og Rosenberg við Klapparstíg hættu nýlega starfsemi sinni en um er að ræða tvo tónleikastaði í miðbænum.

Rekstur Græna herbergisins var í höndum Friðriks Ómars Hjörleifssonar, Jógvans Hansen og Vignis Snæs Vigfússonar, en staðurinn var opnaður í júlí 2016. Ýmis starfsemi hefur verið í húsinu, sem stendur við Lækjargötu 6A, til að mynda kampavínsklúbburinn Strawberry's.

„Það var í raun og veru enginn rekstrargrundvöllur til staðar lengur,“ segir Friðrik Ómar í samtali við Vísi.

Há leiga á þátt í ákvörðuninni um lokun staðarins, en aðrir þættir spila einnig inn í. „Við vorum í raun bara að reka stað sem bauð bara upp á aðsókn um helgar og það bara dugði ekki til.“

Vonast til að opna á nýjum stað

Hann segir það aldrei vera auðvelt að reka tónleikastað. „Þeir hafa gjarnan verið reknir þannig að tónlistarfólk er sjálft að taka áhættuna. Í okkar rekstri vorum við að framleiða viðburði sjálfir og tókum því áhættuna um leið á okkur.“

Hann segir einnig að það sé vitaskuld hægt að reka svona staði og að dæmi séu fyrir því. „Kannski vorum við ekki réttu mennirnir í þetta,“ en Friðrik segir að hann og Jógvan vonist eftir því að opna Græna herbergið aftur seinna, þá í hentugra húsnæði.

Friðrik telur að fyrri starfsemi staðarins, þ.e.a.s. kampavínsklúbburinn Strawberry's, hafi ekki skaðað ímynd Græna herbergisins. „Við tókum hann alveg í gegn og kíttuðum upp í allar myndir á veggjum, þannig ekkert varð eftir. Ég hafði sjálfur aldrei komið þarna inn áður, enda er ég ekkert fyrir konur á súlum.

Staðurinn er ekki kominn í hendur nýrra eigenda en starfseminni hefur verið hætt.



Veitinga- og tónleikastaðurinn Rosenberg við Klapparstíg er kominn í hendur nýrra eigenda.
Rosenberg í hendur nýrra eigenda 

Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson seldu nýlega veitinga- og tónleikastaðinn Rosenberg við Klapparstíg eins og Vísir greindi frá. Ólafur og Kári keyptu reksturinn í febrúar á þessu ári og opnaði staðurinn í nýrri mynd í apríl síðastliðnum.

Ólafur tilkynnti um söluna á Facebook síðu sinni í október síðastliðnum. Þar tekur hann fram að reksturinn hafi ekki gengið vel, en fór þó ekki út í ástæður sem liggja að baki ákvörðunarinnar. Staðurinn hafi verið seldur í hendur nýrra eigenda en ekki er komið í ljós hverjir þeir eru.

Kári Sturluson, annar fráfarandi eigenda, komst nýverið í fréttirnar fyrir aðkomu sína að miðasölu í tengslum við tónleikaröð Sigur Rósar í Hörpunni.

Fréttablaðið greindi frá því að Kári hefði þar fengið fyrirframgreiddar 35 milljónir króna af miðasölu tónleikanna hjá Svanhildi Konráðsdóttur, forstjóra Hörpu. Ekki er vitað í hvað milljónunum 35 var ráðstafað, en það var fyrir víst gert án vitundar hljómsveitarinnar og ekki í tengslum við viðburðinn sjálfan.


Tengdar fréttir

Kári Sturluson kaupir Café Rosenberg

Kári Sturluson, tónleikahaldari, hefur keypt Café Rosenberg af þeim Þórði Pálmasyni og Auði Kristmannsdóttur en staðurinn er einn þekktasti tónleikastaður í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×