Búa sig undir mikla aðsókn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. nóvember 2017 16:00
Þann 3. desember má reikna með fjölmenni í Sundhöll Reykjavíkur þegar ný útisundlaug verður vígð. Ókeypis verður fyrir gesti í sundlaugina þann daginn en daginn fer starfsemin af stað samkvæmt áætlun. Blaðamaður og ljósmyndari Vísis fengu að fara í skoðunarferð um nýju húsakynnin í morgun. Vatn er komið í útilaugina og pottana sömuleiðis. Raunar er nýja mannvirkið svo til tilbúið. Viðgerð stendur yfir á gamla karlaklefanum en tvær og hálf vika er til stefnu fram að opnun. Sundhöll Reykjavíkur við Barónstíg var tekin í notkun árið 1937 en arkitektinn var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins. Sundhöllin fagnar því 80 ára afmæli sínu á árinu. Þegar sundhöllin var opnuð var aðeins klefi fyrir karla á efri hæð. Tveimur árum síðar var geymslum á neðri hæð breytt í búningsklefa fyrir konur sem gátu þá sömuleiðis farið í sund. Búningklefar kvenna færast yfir í nýju bygginguna en karlarnir verða áfram í gömlu byggingunni. Til viðbótar eru útiklefar fyrir bæði kyn. Vaðpottur (38°C), heitur pottur (40°C) og kaldur pottur eru umhverfis útilaugina sem er með fjórum brautum. Hiti er í jörðu á bökkum laugarinnar til að bræða frost og snjó. Þá er gufubað við útiklefana en gufubaðið sem var við útipottana í gömlu lauginni verður breytt í þurrgufu (saunu). Áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar er talinn um 1,6 milljarður króna. Ístak er aðalverktaki við framkvæmdirnar. Unnið var eftir vinningstillögu VA arkitekta sem urðu hlutskarpastir í hönnunarsamkeppni um útisvæðið. Forstöðumaðurinn Logi Friðfinnsson segir aðstandendur hvað stoltasta af aðgengi við fatlaða sem verði gríðarlega gott með sérstökum klefum og lyftum í húsnæðinu og ofan í laugina. Breytingar, stækkun og aukinn þjónustutími, hafa í för með sér að starfsfólki fjölgar nokkuð en aðstaða starfsfólks verður allt önnur og betri en verið hefur. Logi segir að fjölgað verði um tvo starfsmenn á hverri vakt auk þess sem átján ungmenni kom að störfum í hlutastarfi um helgar. Nándin við miðbæinn gæti gert það að verkum að ferðamenn muni streyma í laugina. Logi segir starfsfólkið búa sig undir mikla aðstókn. „Það er mikið um gististaði í nágrenninu og svo er mikil íbúabyggð í kring í göngufæri.“ Sundhöllin verður með sama opnunartíma og Laugardalslaugin, þ.e. frá 6:30-22 á virkum dögum og frá 8-22 um helgar. Nánar um hönnun laugarinnar Lögð var áhersla á að form og fyrirkomulag viðbyggingarinnar tæki mið af þessu þannig að aðalbyggingin nyti sín sem best um leið og til yrði samstæð heild. Laugargólf nýs útisvæðis er hæð neðar en aðkoma frá Barónsstíg, með þessu móti er suðurhlið aðalbyggingar að mestu óbreytt og verður vel sýnileg frá götunni vegna þess hve langhliðar nýbyggingar eru gagnsæjar. Léttleiki var í fyrirrúmi við mótun viðbyggingar og hæð og hlutföll, bæði flata og glugga, laga sig að eldri lágbyggingu. Gengið er inn í nýjan afgreiðslusal frá Barónsstíg. Úr salnum má njóta útsýnis yfir laugasvæði. Aðkoma að núverandi búningsklefum karla er um tengibyggingu en nýir búningsklefar kvenna og búningsherbergi fatlaðra koma á neðri hæð viðbyggingar. Útiklefar og eimbað koma í lágbyggingu meðfram suðurlóðarmörkum. Frambygging og lágbygging meðfram suðurlóðarmörkum mynda ásamt eldri byggingu og veggjum skjólgott laugasvæði. Á útisvæði koma fjögurra brauta, 25 metra löng útilaug, vaðlaug fyrir börn og tveir heitir pottar, sá stærri undir suðurhlið þar sem sólar nýtur yfir daginn.Fleiri myndir úr Sundhöllinni má sjá hér að neðan. Hægt er að fletta myndunum með því að ýta á örvarnar eða draga myndirnar ef þú ert að lesa í snjallsíma. Nýja afgreiðslan í Sundhöllina. Þar fyrir aftan er aðstaða fyrir starfsfólk. Á neðri hæðinni er kvennaklefinn og klefar fyrir starfsfólk.Vísir/Anton BrinkKaldi potturinn sem var um 10°C þegar blaðamaður kom við í dag. Auðvelt er að stjórna hitastiginu og hægt að breyta honum í heitan pott með léttum hætti.Vísir/Anton BrinkÚr kvennaklefanum í nýbyggingunni. Karlarnir verða áfram í sömu klefum sem verið er að gera við þessa dagana.Vísir/Anton BrinkNýja útisvæðið séð að ofan. Á hægri hönd er nýi inngangurinn á efri hæð og kvennaklefinn á þeirri neðri. Útilklefarnir eru í löngu álmunni vinstra megin á myndinni.Vísir/Anton BrinkÚr vaktturninum þar sem sundlaugaverðir hafa aðstöðu.Vísir/Anton BRink
Tengdar fréttir Útisundlaug og vaðlaug fyrir börn við Sundhöllina Gert er ráð fyrir 25 metra langri útisundlaug, vaðlaug fyrir börn, nýjum heitum pottum og eimbaði við Sundhöll Reykjavíkur samkvæmt verðlaunatillögu. 12. nóvember 2013 16:52 Hönnunarsamkeppni um útilaug við Sundhöllina Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um hönnunarsamkeppni um útfærslu útilaugar við Sundhöll Reykjavíkur. Hugmyndir um útilaug hafa um nokkurt skeið verið til skoðunar hjá Reykjavíkurborg og mun samkeppnin taka mið af þeirri vinnu. 26. júlí 2012 14:33 Framkvæmdir hafnar vegna útilaugar Áætlað er að útilaug við Sundhöllina verði opnuð vorið 2017. Verið er að flytja raflagnir sem eru nálægt graftarsvæðinu og í því. Byggð verður 25 m útilaug, vaðlaug, eimbað og pottar. Heildarkostnaður áætlaður 1.420 milljónir. 14. apríl 2015 07:15 Sundhöllin í Reykjavík stendur í íbúum í Grafarholti og Úlfarsárdal „Er það vegna þess að þú býrð í miðbænum?“ spurði íbúi í Grafarholti og Úlfarsárdal á íbúafundi með borgarstjóranum í Reykjavík í kvöld. 16. apríl 2015 22:45 Viðbygging reist eftir umdeildri tillögu Gagnrýnendur verðlaunatillögu í samkeppni um viðbyggingu Sundhallar Reykjavíkur telja að arkitekt hallarinnar hefði ekki samþykkt tillöguna. Stílhrein, segir formaður borgarráðs þar sem ákveðið var á fimmtudag að byrja á verkefninu. 16. nóvember 2013 07:00 Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sjá meira
Útisundlaug og vaðlaug fyrir börn við Sundhöllina Gert er ráð fyrir 25 metra langri útisundlaug, vaðlaug fyrir börn, nýjum heitum pottum og eimbaði við Sundhöll Reykjavíkur samkvæmt verðlaunatillögu. 12. nóvember 2013 16:52
Hönnunarsamkeppni um útilaug við Sundhöllina Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um hönnunarsamkeppni um útfærslu útilaugar við Sundhöll Reykjavíkur. Hugmyndir um útilaug hafa um nokkurt skeið verið til skoðunar hjá Reykjavíkurborg og mun samkeppnin taka mið af þeirri vinnu. 26. júlí 2012 14:33
Framkvæmdir hafnar vegna útilaugar Áætlað er að útilaug við Sundhöllina verði opnuð vorið 2017. Verið er að flytja raflagnir sem eru nálægt graftarsvæðinu og í því. Byggð verður 25 m útilaug, vaðlaug, eimbað og pottar. Heildarkostnaður áætlaður 1.420 milljónir. 14. apríl 2015 07:15
Sundhöllin í Reykjavík stendur í íbúum í Grafarholti og Úlfarsárdal „Er það vegna þess að þú býrð í miðbænum?“ spurði íbúi í Grafarholti og Úlfarsárdal á íbúafundi með borgarstjóranum í Reykjavík í kvöld. 16. apríl 2015 22:45
Viðbygging reist eftir umdeildri tillögu Gagnrýnendur verðlaunatillögu í samkeppni um viðbyggingu Sundhallar Reykjavíkur telja að arkitekt hallarinnar hefði ekki samþykkt tillöguna. Stílhrein, segir formaður borgarráðs þar sem ákveðið var á fimmtudag að byrja á verkefninu. 16. nóvember 2013 07:00