Erlent

Skotárás í Trelleborg í Svíþjóð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Að minnsta kosti fjórir karlmenn voru skotnir í Trelleborg í Svíþjóð í kvöld.
Að minnsta kosti fjórir karlmenn voru skotnir í Trelleborg í Svíþjóð í kvöld. VÍSIR/GETTY
Að minnsta kosti fjórir karlmenn voru skotnir í miðbæ Trelleborg í Svíþjóð í kvöld. Lögreglu bárust nokkrar tilkynningar um hugsanlega skotárás klukkan 22:30 að staðartíma. Að minnsta kosti fjórir karlmenn voru fluttir á sjúkrahús en ekki er vitað um alvarleika meiðsla þeirra. 

Samkvæmt frétt á vef Aftonbladet hefur svæðinu verið lokað og fjöldi lögreglumanna tekur þátt aðgerðum á svæðinu ásamt leitarhundum. Allavega átta sjúkrabílar voru sendir á vettvang en lögregla hefur ekki gefið nánari upplýsingar um þá sem særðust í árásinni. Ekki er vitað hvort einn eða fleiri hafi verið að verki en lögreglan leitar á svæðinu. Rúmlega 40.000 íbúar búa í Trelleborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×