Menning

Leið eins og lögin veldu mig

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Nini Julia á sviðinu þar sem látbragð og lýsing ráðast af hljómi raddarinnar.
Nini Julia á sviðinu þar sem látbragð og lýsing ráðast af hljómi raddarinnar. Mynd/Maciej Zakrzewski
Lögin sem ég flyt urðu kveikjan að sýningunni en þemað er varnarleysi og það að þora að vera berskjaldaður. Ég nota röddina til að afhjúpa þá tilfinningu,“ segir hin danska leik- og söngkona Nini Julia Bang um verkið A Thous­and Tongues sem hún flytur í kvöld í Tjarnarbíói á tíu ólíkum tungumálum.

Hún kveðst hafa þjálfað röddina síðan hún var barn og í þessari sýningu sé hún ein á sviðinu. „Röddin mín, líkami minn, sundlaug og ljós. Lögin og hið sjónræna verður að einni heild,“ útskýrir hún.



En hvaðan kemur tónlistin í A Thous­and Tongues og hvernig valdi hún lögin?

„Ég lærði lögin á ferðalagi mínu um heiminn og mér fannst þau hafa einstaka möguleika til að verða að einhverju. Þau eru frá ólíkum löndum, Kúrd­istan, Grikklandi, Íslandi, Íran, Noregi, Spáni, Búlgaríu og Mongólíu og einnig eru nokkrar línur úr Kóraninum við lag sem ég samdi sjálf.  Lögin eru leiðarljós sýningarinnar. Mér leið reyndar eins og þau veldu mig því hvert tungumál ber með sér ólíkar tilfinningar og ég vildi birta marga og mismunandi menningarheima.





„Lögin urðu að vera sterk, lifandi og örlítið dularfull til að vera með,“ segir Nini Julia sem hér er til hægri en leikstjórinn Samantha Shay til vinstri. Mynd/Victoria Sendra
Lögin urðu að vera sterk, lifandi og örlítið dularfull til að vera með. Ég nota orðið dularfull því að lögin verða að vera lagskipt þannig að ég geti kafað ofan í þau og kannski aldrei skilið til fulls,“ segir Nini Julia og bætir við: „Gott lag mun ávallt halda einhverju leyndu fyrir mér sem ég leita að meðan ég syng.“

Verkið A Thousand Tongues var heims­frumsýnt í Grotowski-stofnuninni í lok síðasta árs á Ólympíumóti í leiklist í Wroclaw í Póllandi, Menningarhöfuðborg Evrópu 2016.

Það var sviðsett og framleitt af alþjóðlega listahópnum Source Material og leikstjóri er hin bandaríska Samantha Shay.

Aðeins verða tvær sýningar hér á landi, í kvöld og á sunnudaginn klukkan 20.30 í Tjarnarbíói.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×