Menning

Opnuðu sýninguna með stæl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnea Einarsdóttir,  Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir og Anita Hirlekar.
Magnea Einarsdóttir, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir og Anita Hirlekar.
Opnun sýningar myndlistakonunnar Áslaugar Írisar Katrínar Friðjónsdóttur, Bygging - skúlptúr - teikning, fór fram í A. M. Concept Space laugardaginn 23. september. Verk Áslaugar tvinnast þar saman við vörur fatahönnuðanna Anitu Hirlekar og Magneu Einarsdóttur í verslun og sýningarrými hönnuðanna við Garðastræti 2.

Sýningin stendur til 23. nóvember. Á sýningunni Bygging – skúlptúr - teikning sýnir Áslaug röð tvívíðra verka, myndir dregnar upp í anda módernískrar fagurfræði.

Í verkum sýningarinnar leikur Áslaug sér með pósitífur og negatífur, léttleika og þyngd, form og liti. Línuteikningar sem teikna upp hugmynd af þrívíðum strúktúrum með vísun í höggmyndalist og arkitektúr.

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006 og lauk síðar mastersnámi frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug hefur tekið þátt í samsýningum á Íslandi, Bandaríkjunum og Evrópu. Síðasta einkasýning hennar, Yfirborð, var í Hverfisgallerí árið 2014.

A. M. Concept Space er konsept verslun og sýningarrými fata- og textílhönnuðanna Anítu Hirlekar og Magneu Einarsdóttur þar sem vörur beggja hönnuða eru til sölu.

Konsept verslunarinnar er samtal hönnuðanna sem báðar leggja áherslu á textíl og áferðir í hönnun sinni en nálgun þeirra er gjörólík.

Reglulega fá hönnuðirnir til liðs við sig þriðja listamanninn eða hönnuðinn til að útfæra rýmið og flíkurnar á nýjan hátt. Rýmið er hrátt, hugsað sem tómur strigi fyrir listamanninn hverju sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×