Erlent

Lengsta eldflaugaskotið hingað til

Samúel Karl Ólason skrifar
Horft á sjónvarpsfréttir í Suður-Kóreu.
Horft á sjónvarpsfréttir í Suður-Kóreu. Vísir/AFP
Norður-Kóreumenn skutu í gærkvöldi eldflaug á loft sem flaug yfir norðurhluta Japan. Um er að ræða lengsta eldflaugaskot einræðisríkisins hingað til og lenti eldflaugin í Kyrrahafinu. Tilraunaskotið endurspeglar þær yfirlýsingar sérfræðinga um að Norður-Kórea sé lengra komin en áður hafði verið talið í þróun eldflauga.

Frá því að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði að Bandaríkjamenn væru tilbúnir til að mæta Norður-Kóreu með „eldi og heift“ hefur Norður-Kórea sprengt sína stærstu kjarnorkusprengju, hótað að skjóta eldflaugum að Gvam, skotið tveimur langdrægum eldflaugum yfir Japan svo eitthvað sé nefnt.

Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar flaug eldflauginn í um 3.700 kílómetra fjarlægð og í um 770 kílómetra hæð. Eyjan Gvam, þar sem Bandaríkin reka stórar herstöðvar, er í 3.400 kílómetra fjarlægð frá Norður-Kóreu.

Norður-Kórea hefur nú færst nær því yfirlýsta markmiði sínu að þróa kjarnorkuvopn og eldflaugar sem geti borið þau með áreiðanlegum hætti til meginlands Bandaríkjanna.

Yfirlit yfir báðar tilraunirnar með langdrægar eldflaugar.Vísir/GraphicNews
Tilraunaskotið hefur verið fordæmt víða um heim og þar á meðal í Kína og í Rússlandi. Talskona utanríkisráðuneytis Kína sagði eldflaugaskotið brjóta gegn ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og að Kínverjar fordæmdu það harðlega, samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar frá Suður-Kóreu.

Þá sagði hún að yfirvöld í Kína væru á móti tilraunum Norður-Kóreu en kallaði eftir því að þeir aðilar sem komi að málinu pössuðu sig að auka ekki spennuna á svæðinu. Ennfremur sagði hún að Kína væri ekki lykillinn í því að stöðva áætlanir Norður-Kóreu, eins og fram hefur verið haldið í Bandaríkjunum.

Forseti Suður-Kóreu, Moon Jae-in, sem hefur lengi talað fyrir auknum viðræðum við Norður-Kóreu sagði að tilraunir nágranna sinna geri viðræður ómögulegar.

Reyndu ekki að skjóta hana niður

Viðvörunarsírenur fóru í gang í Japan eftir að eldflaugin fór á loft. Einungis nokkrar klukkustundir voru síðan Norður-Kórea hafði hótað þvíl að „sökkva“ Japan með kjarnorkuvopnum, en engar tilraunir voru gerðar til að reyna að skjóta eldflaugina niður.

Í stórum hátölurum á Hokkaido-eyju heyrðust raddir skipa íbúum að leita sér skjóls og sambærileg skilaboð komu einnig fram í sjónvarpi, útvarpi og jafnvel í smáskilaboðum í síma. Þetta er í annað sinn á innan við mánuði sem slík skilaboð berast til íbúa eyjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×