Körfubolti

Gaman að fá smjörþefinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi með umboðsmanninum Jóni Arnóri.
Tryggvi með umboðsmanninum Jóni Arnóri. vísir/ernir
Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason hefur vakið heims­athygli fyrir frammistöðu sína með íslensku landsliðunum í sumar. Hann var meðal annars valinn í úrvalslið EM 20 ára liða í júlí og skoraði 19 stig á móti NBA-miðherja Litháens í ágúst. Miðherjinn efnilegi er kominn inn á borð NBA-njósnara og spekúlanta sem sjá hann margir fyrir sér í NBA-deildinni í framtíðinni.

Það er gott að eiga góða að þegar þú ert að stíga fyrstu skrefin í atvinnumennsku og Jón Arnór Stefánsson gefur ekki bara stoðsendingar á Tryggva inni á vellinum. Hann átti eina frábæra stoðsendingu á Bárðdælinginn þegar hann kom honum inn á borð hjá spænska stórliðinu Valencia.

„Hann var tæknilega séð auglýsingin mín. Hann kom með nafnið mitt þangað inn á borðið, vann í þessu ferli og svo var ég allt í einu kominn þangað,“ segir Tryggvi. Eftir frábært sumar hefur áhugi á stráknum aukist og Valencia-menn gætu ekki verið ánægðari með samninginn við Tryggva.

„Þeir eru mjög sáttir við sumarið hjá mér og að sjá hvað ég er búinn að breytast mikið síðustu mánuði. Það er geggjað að fá athyglina. Ég var að tala við þá fyrir tveimur dögum og þá voru þeir að segja til hamingju með allt sumarið og hvað er búið að ganga vel,“ segir Tryggvi.

Tryggvi tekur skot á æfingu íslenska liðsins í gær.vísir/ernir
Umboðsmaðurinn Jón Arnór

Jón Arnór Stefánsson fékk nefnilega aðeins að kynnast mögulegu framtíðarstarfi sínu í sumar þegar hann hafði milligöngu um að efnilegasti körfuboltamaður landsins endaði í spænska úrvalsdeildarliðinu Valencia.

„Þeir eru mjög spenntir að fá hann, ég veit það. Þeir fylgjast rosalega vel með honum og ég fæ reglulega símtöl og skilaboð um hann,“ segir Jón Arnór sem ætti að geta gefið Tryggva dýrmæt ráð.

„Það eru spennandi tímar fram undan hjá honum en mikil og hörð vinna líka, fyrst og fremst sem hann þarf að tileinka sér til að ná langt í þessu. Þetta er bara byrjunin á þessu öllu saman og hann þarf að vera duglegur,“ segir Jón Arnór. En er hann sjálfur að detta inn í umboðsmannastarfið á næstunni?

„Þú þarft að vera mjög óeigingjarn til að taka að þér svoleiðis starf. Ég er ennþá bara að spila en ég hefði alveg áhuga á því að stíga skrefið í átt að einhvers konar umboðsmennsku eftir að ferlinum lýkur,“ segir Jón Arnór en það gæti leynst umboðsmaður í honum.

„Það var gaman að fá smjörþefinn af því með Tryggva. Ég hjálpaði honum og kom honum í samband við mína umboðsmenn á stórri umboðsskrifstofu í þessum bransa, sem er mikilvægt að hafa. Þetta er ákvörðunartaka allan tímann og þú tekur annaðhvort réttar eða rangar ákvarðanir og það getur mótað það algjörlega hvert þú ferð og hvernig ferillinn mun líta út,“ segir Jón.

Jón Arnór leggur boltann ofan í körfuna gegn Grikkjum.vísir/ernir
Ég var lánsamur

Jón Arnór á að baki flottan atvinnumannsferil en er nú kominn heim og spilar með KR. Á hans síðasta tímabili úti í Evrópu spilaði hann með Valencia veturinn 2015-16. Síðasta tímabilið var hans fjórtánda í annaðhvort Evrópu eða NBA og alls lék hann í fimm löndum á þessum tíma.

„Ég var lánsamur að taka réttar ákvarðanir og það væri æðislegt að geta hjálpað einhverjum öðrum að gera slíkt hið sama,“ segir Jón.

Tryggvi hefur trú á því að Jón geti fundið sig vel í þessu umboðsmannastarfi í framtíðinni. „Ég myndi segja að hann væri besti Íslendingurinn í það í dag. Ég þekki umboðsheiminn samt svo lítið að ég þori ekki að gefa neina almennilega skýrslu um það. Hann er með mjög flottan og stígandi feril eins og maður vill hafa. Ferill hans hefur líka verið frekar stöðugur,“ segir Tryggvi.

Ísland mætir Póllandi í dag og Frakklandi á morgun á Evrópumótinu í Helsinki. Þetta eru mjög sterkir mótherjar en fyrir fram eygja menn aðeins meiri möguleika á móti Póllandi í dag.


Tengdar fréttir

Martin: Ég hef aldrei séð það áður hjá íslensku landsliði

Martin Hermannsson er ekkert hrifnari af keppnisboltanum eftir nóttina. Forráðamenn evrópska körfuboltasambandsins voru nefnilega ekki að gera íslensla körfuboltalandsliðinu neinn greiða þegar þeir völdu keppnisboltann fyrir Eurobasket 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×