Virði VÍS metið lægra en Sjóvár og TM Kristinn Ingi Jónsson skrifar 7. september 2017 06:00 Afkoma VÍS á öðrum fjórðungi var sú besta frá því að félagið var skráð á markað í apríl 2013. vísir/anton brink „
Veruleg tækifæri“ eru til virðisaukningar hjá tryggingafélaginu VÍS að mati sérfræðinga Capacent. Verðmat þeirra á félaginu er áberandi lægra en hjá hinum skráðu tryggingafélögunum tveimur, Sjóvá og TM, en þeir taka þó fram að afkoma félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins gefi fullt tilefni til meiri bjartsýni en áður. Samkvæmt nýju verðmati sérfræðinga Capacent, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er gengi hlutabréfa í félaginu metið á 10,4 krónur á hlut. Það er um 5,6 prósentum hærra en gengi bréfanna stóð í þegar mörkuðum var lokað í gær. Til samanburðar er verðmatsgengi Sjóvár og TM um 20 prósentum yfir markaðsverði félaganna. Sérfræðingar Capacent benda á að virði VÍS sé metið lægst af tryggingafélögunum þremur sé miðað við hefðbundnar verðkennitölur. Þannig stendur VÍS lakast að vígi þegar litið er til fjárfestingartekna félaganna sem hlutfalls af fjáreignum og er niðurstaðan sú sama ef tekið er mið af verðmati Capacent sem hlutfalli af bókfærðu virði félaganna (P/B). Samsett hlutfall VÍS, það er hlutfall rekstrar- og tjónakostnaðar af eigin iðgjöldum, hefur að sögn Capacent verið áberandi hærra en hjá Sjóvá og TM síðustu ár. Kann sá munur að útskýra að hluta til hvers vegna verðmatið á félaginu er eins lágt og raun ber vitni. Hlutabréfagreinendur hagfræðideildar Landsbankans hafa jafnframt bent á að hlutabréf VÍS séu verðlögð um 10 til 15 prósentum lægra gagnvart hlutabréfum Sjóvár og TM sé litið til hefðbundinna verðkennitalna. Arðsemi eigin fjár tveggja síðarnefndu félaganna hafi hingað til réttlætt þennan mun en það kunni hins vegar að fara að breytast. Sérfræðingar Capacent segja að kveðið hafi við nýjan tón í uppgjöri VÍS fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Sérstaka athygli vakti góð afkoma félagsins af vátryggingarekstri, en til marks um það var samsetta hlutfallið 83,7 prósent á öðrum fjórðungi ársins. Hefur það ekki verið lægra í „manna minnum“ að sögn Capacent. Gera stjórnendur félagsins ráð fyrir að hlutfallið verði á bilinu 95 til 98 prósent á árinu. Greinendur Landsbankans benda hins vegar á í viðbrögðum sínum við uppgjöri VÍS að afkoma vátryggingarekstrar félagsins hafi verið slök á fyrsta fjórðungi ársins og því sé samsetta hlutfallið 95,2 prósent þegar horft sé til fyrstu sex mánaða ársins. Þeir telja ólíklegt að VÍS verði með lægsta hlutfallið af tryggingafélögunum til langs tíma litið og benda í því sambandi á að samkeppnisforskot í vátryggingarekstri vari venjulega um stutt skeið. Sögulega séð er samsett hlutfall íslenskra tryggingafélaga fremur hátt, yfir eitt hundrað prósent, og hafa þau því að jafnaði þurft að reiða sig á fjárfestingartekjur til að skila hagnaði. Hlutfallið var 105,6 prósent hjá TM og 100,4 prósent hjá Sjóvá á öðrum fjórðungi ársins. Að mati greinenda olli rekstur TM vonbrigðum á tímabilinu, en sérfræðingar Capacent benda þó á að fjárfestingartekjur félagsins hafi verið ljósi punkturinn í uppgjörinu. Ávöxtun eignasafns TM hefur verið um 17 prósent á síðustu tólf mánuðum sem verður að teljast sérstaklega góð ávöxtun. Capacent metur gengi bréfa TM á 35,0 krónur á hlut, en til samanburðar var gengi bréfanna 29,3 þegar mörkuðum var lokað í gær. Hefur verðmat Capacent lækkað umtalsvert frá því í maí, fyrst og fremst vegna verri afkomu af vátryggingarekstri á fyrri helmingi ársins en áður var reiknað með. Þess má þó geta að spá forsvarsmanna félagsins gerir ráð fyrir að síðari helmingur ársins verði mun betri en sá fyrri. Gera þeir ráð fyrir að samsetta hlutfallið verði 101 prósent á árinu í heild. Sérfræðingar Capacent meta gengi bréfa Sjóvár á 19,7 krónur á hlut sem er tæplega tuttugu prósentum yfir markaðsgengi bréfanna í gær. Er verðmatsgengið óbreytt frá því í maí. Hlutabréf tryggingafélagsins hafa lækkað um rúmlega fimmtán prósent í verði frá því í byrjun maímánaðar. Eiga greinendur Capacent erfitt með að útskýra það í ljósi þess að „reksturinn hefur gengið vel og verið umfram væntingar“.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir VÍS bætir upplýsingagjöf til markaðarins Við viljum efla alla okkar upplýsingagjöf til markaðarins og þetta er eitt skref í því,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri tryggingafélagsins VÍS, í tilefni þess að félagið hefur ákveðið að birta reglulega upplýsingar um samsett hlutfall og greiddar tjónabætur. 30. ágúst 2017 09:00 VÍS hagnast um 1,1 milljarð Tryggingafélagið VÍS hagnaðist um 1.107 milljónir króna á fyrri helming ársins 2017, samanborið við 238 milljónir króna á sama tímabili árið 2016. 24. ágúst 2017 15:58 Mest lesið „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
VÍS bætir upplýsingagjöf til markaðarins Við viljum efla alla okkar upplýsingagjöf til markaðarins og þetta er eitt skref í því,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri tryggingafélagsins VÍS, í tilefni þess að félagið hefur ákveðið að birta reglulega upplýsingar um samsett hlutfall og greiddar tjónabætur. 30. ágúst 2017 09:00
VÍS hagnast um 1,1 milljarð Tryggingafélagið VÍS hagnaðist um 1.107 milljónir króna á fyrri helming ársins 2017, samanborið við 238 milljónir króna á sama tímabili árið 2016. 24. ágúst 2017 15:58