Lífið

Níu ára Lotta fékk óvænta gjöf frá fyrrum markmanni ÍA

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Myndir Önnu Fríðu af Lottu að æfa sig vöktu mikla athygli á Twitter
Myndir Önnu Fríðu af Lottu að æfa sig vöktu mikla athygli á Twitter Anna Fríða
Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Dominos, deildi fallegum myndum á Twitter á dögunum með þeim skilaboðum að hún hefði séð EM auglýsingu. „Ung stelpa á landsbyggðinni að æfa sig í fótbolta með hundinum og kettinum sínum.“

Vitnar Anna Fríða þar í fallegu Icelandair auglýsinguna sem frumsýnd var í kringum EM kvenna í knattspyrnu í sumar.  Anna Fríða sagði frá því að stúlkan býr á Þykkvabæ, heitir Þórhildur Lotta og er 9 ára gömul. Þórhildur Lotta, sem kölluð er Lotta, æfir tvisvar á dag með hundinum Loppu.

Skemmtilegi pakkinn sem Marella sendi Lottu í póstiVeronika

„Haltu áfram að vera frábær“

Marella Steinarsdóttir fyrrum markmaður ÍA og umboðsmaður MG-GK markmannshanskanna á Íslandi sá færsluna og ákvað að hafa samband við þessa duglegu fótboltastelpu. Marella sendi Lottu í kjölfarið fallegt handskrifað bréf og tvenna markmannshanska en Lotta er markmaður í sínum flokki fótbolta.

Móðir Lottu deildi þessu fallega góðverki á Facebook síðu sinni og birti myndir af bréfinu. Í bréfinu skrifaði Marella meðal annars:

„Það eru svona stelpur eins og þú, sem láta ekkert stoppa sig, sem eiga eftir að breyta ásýnd kvennaknattspyrnu í framtíðinni. Haltu áfram að vera frábær.“

„Það eru svona þrjár vikur síðan hún fékk þennan fallega pakka,“ segir Veronika Eberl móðir Lottu í samtali við Vísi.

„Ég þekki Önnu Fríðu og Marellu ekki neitt, ég held að Anna Fríða hafi verið í útilegu í nágrenninu þegar hún tók myndirnar.“

Byrjaði að æfa 3 ára

Þær mæðgur voru virkilega hissa þegar pakkinn barst þar sem þær höfðu þá ekki séð Twitterfærslu Önnu Fríðu. „Hún var svo ánægð, trúði þessu ekki,“ segir Veronika um viðbrögð Lottu.

Efnilegi ungi markmaðurinn hringdi í Marellu og þakkaði fyrir gjöfina og ræddu þær lengi saman um fótbolta og æfinga. Veronika segir að þetta sé allt mikil hvatning fyrir Lottu að halda áfram að æfa sig.

„Hún byrjaði að æfa sig heima í fótbolta svona þriggja ára. Hún er líka mikil hestakona. Svo byrjaði hún að æfa með knattspyrnuliði síðasta vetur. 11 ára bróðir hennar er líka í fótbolta.“ Systkinin æfa með KFR á veturna og ÍBV á sumrin.

Lotta á fótboltamóti í sumarVeronika
„Hún er alltaf að æfa sig, oft bara með kettinum og hundinum úti,“ segir Veronika og hlær. „Henni finnst samt skemmtilegast í marki.“

Lotta keppti á Símamótinu í sumar og ætlar að vera dugleg að æfa fótbolta áfram.

„Bróðir hennar Lottu heitir Patrekur Jóhann og hann var þegar hann var að byrja að æfa var hann alltaf að segja Lottu að koma með sér út að sparka. Hann er búinn að kenna henni ýmislegt í fótboltanum,“ segir Veronika að lokum.

EM auglýsingu Icelandair má sjá hér fyrir neðan


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×