Lífið

Hafa ekki sést saman í sjö vikur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ben Affleck og Jennifer Lopez í New York þann 30. mars. Síðan hafa þau ekki sést saman.
Ben Affleck og Jennifer Lopez í New York þann 30. mars. Síðan hafa þau ekki sést saman. MEGA/GC Images)

Bandarísku ofurhjónin Jennifer Lopez og Ben Affleck hafa ekki sést saman opinberlega í sjö vikur, eða því sem nemur rúmlega fimmtíu dögum. Þetta hefur ekki verið til þess að kveða niður þrálátan orðróm um að það stefni í skilnað.

Í umfjöllun bandarískra slúðurmiðla hafa síðustu daga birst myndir af Jennifer Lopez á opinberum vettvangi, án eiginmannsins. Hún er nú stödd í Los Angeles en hafði áður mætt ein á einn stærsta viðburð ársins, Met Gala. Þá var hún ekki með leikaranum þegar hann mætti til að grilla Tom Brady í vinsælum Netflix þætti.

Síðast sáust þau saman í New York snæða hádegismat saman fyrir rúmlega tveimur mánuðum síðan á páskum í mars. Í umfjöllun bandarískra slúðurmiðla er fullyrt að Ben sé fluttur út af heimili þeirra hjóna. Hann vilji einbeita sér að vinnu og gefa krökkunum sínum meiri tíma.

Er haft eftir ónefndum heimildarmönnum, sem sagðir eru nánir hjónunum, að það hafi reynt mikið á hjónabandið að Jennifer hafi ákveðið að segja frá sambandinu í heimildarmynd um hana á Amazon Prime sem ber nafnið The Greatest Love Story Never Told. Affleck er sagður hafa verið mótfallinn því að hún segði frá sambandinu og deildi ástarbréfum þeirra á milli með samstarfsfólki.

Af og á í yfir tuttugu ár

Ljóst er að ef satt reynist munu margir syrgja samband hjónanna sem hafa stungið saman nefjum með hléum í meira en tuttugu ár. Þau byrjuðu fyrst saman árið 2002 þegar þau léku saman í rómantísku gamanmyndinni Gigli.

Affleck fór á hnén og þau trúlofuðu sig en hættu svo saman árið 2004. Síðan þá voru þau með öðru fólki, giftu sig, eignuðust börn og allt þess á milli.

Það var svo í maí árið 2021 þar sem sögusagnir fóru á kreik um að ofurstjörnurnar væru farnar að stinga saman nefjum á ný, sem kom á daginn að reyndist vera rétt. Þau giftu sig sumarið 2022 en nú virðist vera sem babb sé komið í bátinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×