Menning

Dodda Maggý opnar Variations í BERG

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dodda Maggý býr og starfar í Reykjavík.
Dodda Maggý býr og starfar í Reykjavík.
BERG Contemporary stendur fyrri opnun á sýningunni Variations í galleríinu BERG Contemporary á föstudaginn.

Dodda Maggý er íslenskur myndlistarmaður og tónskáld sem nýtir sér margslungna aðferðafræði tónsmíða og kvikmyndagerðar í einstökum verkum sínum, sem bera þar af leiðandi ýmis blæbrigði mismunandi listmiðla.

Það reynist því vandkvæðum háð að flokka verk hennar eftir hefðbundnum leiðum, en þau finna sér stað á mörkum hljóðlistar, kvikmyndagerðar og vídeólistar.

Verk hennar hafa verið sýnd víða í söfnum, galleríum og á listamessum bæði á Íslandi og erlendis, svo sem í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Scandinavia House í New York, Yale háskóla í Bandaríkjunum og Contemporary Art Society í Lundúnum. Hún býr og starfar í Reykjavík.

Um er að ræða fyrstu einkasýningu listamannsins í BERG Contemporary, þar sem sýnd verða ný verk. Sýningin stendur til 21. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×